Holtsgata 28
01-0101 · 260 Reykjanesbæ



7 dagar á sölu
47.700.000 kr
550.173 kr/m²
Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu góða neðri hæð á vinsælum stað í Njarðvíkurskólahverfi, Holtsgötu 28.
Eignin er skráð 86,7 fm skv FMR og samanstendur af tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, góðri stofu, eldhúsi með borðkrók, góðu miðrými með fatahengi og flísalögðu salerni með sturtu. Sér þvottahús/geymsla fylgir eigninni, þaðan er útgengt út í stóran bak garð. Í bak garði er geymsluskúr sem fylgir með eigninni. Að framanverðu húsinu er búið að helluleggja og gera ráð fyrir sér sólpalli fyrir neðri hæðina. Björt sameiginleg forstofa er með rishæð, dökkar flísar á gólfi og teppi á stigapalli.
* Vel staðsett eign með tilliti til skóla, leikskóla, sundlaugar, verslunar og helstu þjónustu.
* Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar.
* Eikarparket sem búið er að pússa upp á gólfum.
* Geymsluskúr í lóð fylgir eigninni.
* Sér þvottahús með útgengi út í góðan bakgarð.
Skoðunarbókanir og söluyfirlit veitir Unnur Svava í síma 8682555 og á netfanginu unnur@allt.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















