HÚSASJÁ

Háseyla 5

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

208 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1981

Byggingarár

Sérinngangur

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



471 dagar á sölu

sell

106.000.000 kr

510.351 kr/m²

RE/MAX og Kristbjörg Inga Valsdóttir löggiltur fasteignasali kynna Háseylu 5, 260 Reykjanesbæ fnr. 209-3356Fallegt og vel skipulagt 5 herbergja timburhús í Akurhverfi í Innri Njarðvík. Eignin er skráð 207,7 fm skv. þjóðskrá. Íbúðarhlutinn er 157,7 fm og bílskúr 50 fm. Bílskúr er innréttaður að hluta til. Geymsluloft er bæði yfir íbúðarhluta og bílskúr. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Bílaplan er með snjóbræðslu.

Eignin hefur fengið gott viðhald og er við botnlangagötu í góðu fjölskylduvænu hverfi. Stutt er í Leik- og grunnskóla og fallegar gönguleiðir um ósnortna náttúru. Stutt er á Fitjar þar sem er góður þjónustukjarni með veitingastöðum og matvörubúðum.

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 97.950.000 kr.

Bókið einkaskoðun

Allar nánari upplýsingar veitir Kristbjörg Inga Valsdóttir, lgf. S 776-2924 / ingavalsdóttir@remax.is

Makaskipti á minni eign í rað- eða parhúsi koma til greina

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGN Í 3D

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:

Íbúðin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, eldhús, búr, stofu/borðstofu, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, sólskála, bílskúr og háaloft.

Forstofa : Flísar á gólfi og opnið fatahengi.

Stofa : Parket á gólfi. Útgengi út á lokaða verönd.

Eldhús : Gólfhiti. Parket á gólfi og hvít innrétting með góðu skápaplássi. Inngengt í búr og þvottahús.

Hjónaherbergi : Parket á gólfi. Inngengi inn í sólskála.

Barnaherbergin : Eru þrjú: Öll með parketi á gólfi.

Baðherbergi : Gólf flísalagt og veggir að hluta til. Steypt Baðkar sem er flísalagt með sturtu. Góð innrétting og salerni.

Gestasnyrting : Parket á gólfi. Innrétting og salerni.

Þvottahús :  Flísar á gólfi og viðarlituð innrétting.

Búr : Parket á gólfi. Með hillum.

Sólskáli : Gólfhiti. 18,9 fm með flísum á gólfi og heitum potti. Útgengt út á verönd og út í hliðarport milli húss og bílskúrs. Endurbyggður 2012.

Bílskúr : Steypt gólf. Að hluta til innréttaður. Tvö herbergi og salernisaðstaða. Háaloft.

Háaloft : Gott geymslurými sem er bæði yfir íbúðarhluta og bílskúr eignar.

​​​Þak : Endingargott álþak er á eigninni.

2024: Parket endurnýjað í stofu, eldhúsi og herbergjagangi og gólfhiti settur í eldhúsgólf. Borðplata í eldhúsi endurnýjuð og hurðarhúnar. Nýr forkrani settur á hitaveitu.

2023: Hús málað að utan og skipt um útiljós. Rafmagn endurnýjað að hluta og tenglar.

2015: Lagnir yfirfarnar og kalda- vatnslagnir endurnýjaðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristbjörg Inga Valsdóttir, lgf. S 776-2924 / ingavalsdóttir@remax.is

Ég þjónusta þig með ánægju í gegnum allt söluferlið. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu. Innifalið í minni þjónustu er aðstoð við uppstillingu fyrir myndatöku, fagljósmyndun og 3D myndataka.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Háseyla 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22