Fífumói 1A
04-0104 · 260 Reykjanesbæ



46 dagar á sölu
39.900.000 kr
737.523 kr/m²
Borgir fasteignasala kynnir eignina Fífumói 1, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 209-3127 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Fífumói 1 er skráð sem 2ja herbergja íbúð. Birt stærð 54.1 fm.
Mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ. Svalir snúa í austur.
Söluyfrlit
Þvottaaðstaða innan íbúðar
Geymsla/fataherbergi er inn af anddyri.
Stofa/eldhús er í opnu rými með útgengi út á svalir.
Tengi er fyrir borðuppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walkin sturta og upphengt salerni.
Herbergi er með fataskáp.
Harðparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Sameiginleg hjólageymsla er við inngang hússins. Einnig er sameiginlegt þurrkherbergi sem notað er sem geymsla á sömu hæð.
Vinsælt hverfi. Rúmgott bílastæði er við húsið, þar er rafhleðslustöð.
Hverfið tilheyrir Njarðvíkurskólahverfi og er í göngufæði við alla helstu þjónustu og íþróttasvæði, einnig er fallegt útivistarsvæði með frisbígolfi og leikvelli steinsnar frá eigninni.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








