Brekkustígur 31D
01-0101 · 260 Reykjanesbæ



42 dagar á sölu
69.900.000 kr
496.449 kr/m²
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Fallegt og vel skipulagt 4 herbergja 140,8 fm raðhús með við Brekkustíg 31 í Reykjanesbæ, þar af er 28,2 fm bílskúr. Eignin er á þremur hæðum. Þar af er háreist og því vel nýtanlegt ris sem er óskráð, og er því ekki meðtalið í skráðri stærð eignarinnar. Þakgluggar með opnanlegu fagi eru á þaki rishæðar.
// Mikið endurnýjað.
// 3 stór herbergi.
// Stór pallur og hægt að setja heitan pott.
// Stórt ris sem er ekki í skráðum fermetrum sem hægt er að nýta.
// Bílskúr.
// Stutt í skóla og alla þjónustu.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Stofan/borðstofan er björt og rúmgóð, hurð er út á stóran afgirtan pall sem snýr í suður. Baðherbergi var flísalagt á síðasta ári, bæði gólf og veggir. Nýlegar flísar er á gólfum neðri hæðar en harðparket er gólfum herbergja 2. hæðar.
Fyrir nokkrum árum var skipt um neysluvatnslagnir í húsinu ásamt því að settur var gólfhiti á 1. hæð og í gólf baðherbergis. Samhliða voru lagðar nýjar ofnalagnir og settir upp nýir ofnar á efri hæðum eignarinnar. Fyrir nokkru var skipt um glugga í eigninni ásamt svalahurð. Allar lagnir eru til staðar við pall eignarinnar, tilbúnar til tengingar við heitan pott, ásamt blöndunartæki við lagnagrind.
Árið 2020 var lokið við múrviðgerðir á raðhúsalengjunni og húseignin ásamt bílskúrum máluð. Ofnar eru allir endurnýjaðir á efri hæð.
Nánari lýsing:
Neðri hæð.
Forstofa: Með flísar á gólfi.
Þvottahús: Er inn af forstofu. Þar var áður gestasalerni.
Hol: Er með flísum á gólfi og nýtanleg geymsla.
Eldhús: Eldhúsið er mjög rúmgott með miklu skápaplássi. Stór borðkrókur með flísar á gólfi, góð og nýleg sérsmíðuð innrétting og nýleg tæki.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi, flísar er á gólfi og nýleg hurð út á afgirtan pall.
Nýlegar flísar og gólfhiti er á neðri hæð.
Efri hæðin.
Steyptur stigi er uppá 2. hæð.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt bæði á gólfi og veggjum, nýleg og sérsmíðuð innrétting með góðu skápaplássi, sturta og upphengt salerni.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi 1: Parket á gólfi, rúmgott.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi, rúmgott.
Ris: Rúmgott og nýtanlegt háreist ris er á efri hæð þar sem eru tveir opnanlegir þakgluggar, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara og möguleiki á íbúðarými.
Bílskúr: Er 28,20 fm, Rúmgóður með rafmagni og hita.
Lóð: Plan er malbikað með merkt bílastæði.
Staðsetningin er góð, Húsið er í sömu götu og Njarðvíkurskóli ásamt sundlaug og íþróttahúsi. Tónlistarskóli bæjarins er handan við götuna ásamt verslunarmiðstöð.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















