Vallargata 9
01-0101 · 230 Reykjanesbæ



393 dagar á sölu
211.000.000 kr
473.944 kr/m²
BYGGINGALÓÐINAR VALLARGATA 7 OG 9 í Reykjanesbæ.
RE/MAX og Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu 1788 fm lóð fyrir fjölbýlishús á Vallargötu 9
Um er að ræða lóð sem verður til við sameiningu lóðanna Vallargötu 9, 9a og 11 í eina lóð, Vallargötu 9.
Samkvæmt gildandi skipulagi verður heimilt að byggja á lóðinni fjölbýlishús að hámarki tvær hæðir auk ris með allt að 36 íbúðum. Áætlað er að íbúðir verði á bilinu 45–75 fm að stærð. Heimilt verður að hafa geymslur og tæknirými í kjallara.
Nýtingarhlutfall ofanjarðar verður að hámarki 1,53 og neðanjarðar að hámarki 0,8, eða samtals hámarksnýtingarhlutfall 2,33.
Sjá nánar um skipulag lóðarinnar á vef Skipulagsstofnunar https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=SK_TZkt78UC3oeM8RyrS5g
Allar nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali s: 663-9000 eða á vilhelm@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum og 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna