Sunnubraut 3
01-0101 · 230 Reykjanesbæ



18 dagar á sölu
79.900.000 kr
484.242 kr/m²
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 165 fm einbýlishús á frábærum stað í Keflavík.
Um er að ræða einbýlishús með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og 35,6 fm bílskúr í Holtaskólahverfi í Keflavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki ásamt flestri þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu,hol,eldhús,baðherbergi, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús og bílskúr. Einnig er geymsluloft yfir eigninni með gluggum sem bíður uppá einhverja möguleika.
Nánari lýsing:
Forstofa hefur parket á gólfi, frá forstofu er inngengt í geymslu þar sem er stigi til að fara uppá loft.
Hol hefur parket á gólfi
Stofa/borðstofa hefur parket á gólfi
Eldhús hefur parket á gólfi og gamla innréttingu
Baðherbergi hefur innréttingu við vask, salerni og baðkar með sturtu.
Herbergin þrjú eru öll mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Þvottahús hefur málað gólf og hurð út á baklóð
Bílskúr hefur rafmagnsopnun, hurð hefur verið endurnýjuð, skúr einangraður og klæddur fyrir nokkrum árum.
Búið er að endurnýja einhverja glugga og einnig útidyrhurð.
Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir stuttu.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar að hluta.
Járn á þaki íbúðarhús endurnýjað en járn á bílskúr lélegt.
Verönd og skjólveggir nýlegir.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















