HÚSASJÁ

Sóltún 3

01-0201 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

137 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1952

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

509.847 kr/m²

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Sóltún 3, 230 Reykjanesbær

Þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinngangi og bílskúr á vinsælum og rótgrónum stað í Keflavík. Íbúðin hefur verið að mestu endurnýjuð árið 2024, með nýju eldhúsi, endurnýjuðu baðherbergi og nýjum gólfefnum. Sameiginlegt þvottahús er á fyrstu hæð og óinnréttað rými í risi sem býður upp á frekari nýtingarmöguleika.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 137.1 m², þar af er íbúðarrými 94,30 m² og bílskúr 42,80 m².

Eign merkt 02-01, fastanúmer 209-0469 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:

Forstofa er á fyrstu hæð, úr forstofu er gengið inn í sameiginlegt þvottahús með neðri hæð. Steyptur stigi liggur upp á efri hæð með nýlegu teppi.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu með ofn í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Harðparket á gólfi. Eldhús var endurnýjað árið 2024.

Stofa og borðstofa eru rúmgóð með harðparketi. Möguleiki að gera svefnherbergi í hluta rýmissins.

Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi og opnum fataskáp. Útgengt á svalir frá herbergi.

Gangur með harðparketi og stigalúga upp á loft. Í risi er stórt óinnréttað rými/háaloft með ágætri lofthæð sem býður upp á ýmsa möguleika.

Baðherbergi var endurnýjað árið 2024. Flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, spegill með lýsingu, falleg innrétting og upphengt salerni.

Þvottahús er sameiginlegt á fyrstu hæð. Einnig er sameiginleg kompa undir húsinu baka til og er þar hitagrind og lagnaleið út í bílskúr.

Lítil geymsla er staðsett undir stiga.

Bílskúr er séreign efri hæðar, 42,80 m² að stærð og hefur verið nýttur sem ókynnt geymsla í nokkurn tíma. Bárujárn á þaki hefur verið endurnýjað.

Byggingarlýsing:

Húsið er tvíbýli og byggt árið 1952. Húsið er klætt báru að utan. Gluggar og hurður úr timbri. Bílskúr er úr timbri byggður árið 1963.

Lóð og aðkoma:

Malarinnkeyrsla er fyrir framan bílskúr og er hún sérafnotaréttur efri hæðar. Garðurinn er afgirtur og að stærstum hluta graslagður.

Framkvæmdir að sögn seljenda:

2026 voru frárennslilagnir endurnýjaðar frá húsi og út í götu.

2025 var bárujárn og þakpappi endurnýjaður á bílskúr.

2024 var farið í ýmsar viðgerðir og endurnýjanir. Nýtt rafmagn var dregið í, tenglar og rofar endurnýjaðir. Neysluvatnslagnir endurnýjað niður að inntaki. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað. Baðherbergi endurnýjað. Skipt um gólfefni á íbúð og teppi á stiga. Gluggar yfirfarnir, sponsaðir og gert við eftir þörfum. Allt málað (veggir, loft hurðar og gluggar).

Allar nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Kort af Sóltún 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu