HÚSASJÁ

Mávabraut 8B

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

176 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1960

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

88.900.000 kr

503.398 kr/m²

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir Mávabraut 8B, 230 Reykjanesbær. Vel skipulagt og mikið endurnýjað 5 herbergja raðhús á tveimur hæðum. Eignin er 176,6fm, þar af er 45,1fm bílskúr. Afgirtur sólpallur með pergola. Eignin er vel staðsett í Keflavík. Leik-, grunn- og framhaldsskóli, sundmiðstöð, íþróttahús, verslunarkjarni o.fl í göngufæri.

Nánari lýsing: Eignin skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, stofu/borðstofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Neðri hæð:

Forstofa: er flísalögð, góður fataskápur upp í loft.

Geymsla: inn af forstofu er flísalögð fatageymsla með rennihurð (getur nýst sem geymsla).

Gestasalerni: er nett, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, lítil innrétting með vaski, gluggar.

Eldhús: með góðri U-laga innréttingu, skápar upp í loft, innbyggður ísskápur, helluborð, stór háfur, korkur á gólfi, hurð inní þvottahús.

Stofa/borðstofa: bjart og opið rými, fallegur útskotsgluggi, parket á gólfi, útgengt út á sólpall.

Þvottahús: er inn af eldhúsi, flísalagt, gott vinnupláss, hurð út á framlóð.

Efri hæð: Stigi uppá efri hæðina er með náttúrulegu sisal teppi á þrepunum.

Herbergjagangur: komið er upp stiga á herbergjagang með sisal teppi.

Herbergin eru fjögur: Hjónaherbergi með fataskápum upp í loft, parket á gólfi, góðar vestur svalir. Tvö önnur herbergi með fataskápum, bæði parketlögð, annað þeirra nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag. Eitt minna parketlagt herbergi.

Baðherbergi: er með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt wc, gluggi.

Lóð: Sólpallur með pergola. Garður á baklóð er afgirtur, lítill skúr.

Bílskúr: Geymslupláss í hluta. Sérinngangur úr bakgarði. Nýleg bílskúrshurð, nýir ofnar.

Búið er að leggja og gera ráð fyrir hita í gólfi í eldhúsi, forstofu og gestasalerni.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Mávabraut 8B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð