Heiðarból 4
01-0301 · 230 Reykjanesbæ



1 dagar á sölu
44.900.000 kr
579.355 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 3ja herbergja 77,5m² íbúð á mjög góðum stað í Heiðarskólahverfi.
Um er að ræða eign á 3ju hæð með svalir í vestur. Fallegt útsýni.
Sameiginleg forstofa er flísalögð og stigagangur er teppalagður.
Gangur er parketlagður og þar er góður skápur.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er sprautuð innrétting og eldavél.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuaðstaða stúkuð af með gleri. Aðstaða fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Stofa er parketlögð og hurð er út á svalir frá stofu.
Svefnherbergin eru bæði parketlögð og skápar eru í þeim báðum.
*Sér geymsla, ca. 5m² er á fyrstu hæð hússins.
*Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
*Búið er að endurnýja neyslulagnir.
*Búið er að endurnýja glugga á austurhlið hússins.
*Eignin er á mjög góðum stað nærri verslun, skóla og leikskólum.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Magnússon lfs
s. 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



















