Heiðarból 3
01-0101 · 230 Reykjanesbæ



82 dagar á sölu
108.000.000 kr
572.337 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt 146.1fm fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt 42.6fm bílskúr
Birt stærð eignarinnar er 188.7fm.
-------Falleg eign á frábærum stað nærri skóla og leikskóla-------
Forstofa er flísalögð og hiti er þar í gólfi
Forstofusalerni hefur flísar á gólfi og glugga.
Hol er mjög rúmgott og er það parketlagt, hurð er út á afgirta verönd frá holi.
Stofa og borðstofa hafa parket á gólfi
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er nýleg hvít innrétting, ofn, helluborð og háfur, innfelld uppþvottavél og ísskápur fylgja með. Borðplata er kvartsteinn.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, þar er hvít innrétting og stór skápur. Hurð er út á lóð frá þvottahúsi, inngangur í bílskúr beint á móti þvottahúshurð.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er hvít innrétting, flísalagður sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn og gluggi.
Svefnherbergin eru öll parketlögð, skápur er í hjónaherbergi og í tveimur barnaherbergjanna.
Bílskúr er fullbúinn, epoxy á gólfi og hurðaopnari.
*Eldhús endurnýjað 2018.
*Hiti er í gólfum í forstofu, baðherbergi, eldhúsi og í borðstofu.
*Búið er að endurnýja neyslulagnir.
*Forhitari er á miðstöðvarlögn.
*Búið er að endurnýja rafmagnsrofa og tengla.
*Innkeyrsla er hellulögð og með hitalögn.
*Afgirt verönd er á baklóð með heitum potti - Lóð er öll frágengin og grasilögð.
*Eignin er á mjög góðum stað, örstutt frá Heiðarskóla og leikskólanum Heiðarseli.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir































