HÚSASJÁ

Hátún 34

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

151 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



27 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

510.624 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Hátún 34, 230 Reykjanesbær, birt stærð 150.6 fm.

Falleg jarðhæð í tvíbílishúsi með bílskúr á vinsælum stað í Keflavík. Eignin er staðsett innst í botnlanga.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, rúmgóðan gang, þrjú svefnherbergi, stofu og þvottahús. Bílkskúr er við hlið húss.

Nánari upplýsingar veitir/veita:

Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali,  í síma 560-5500 tölvupóstur pall@allt.is.

Sigurjón Rúnarsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is

Eignin hefur verið endurnýjuð á síðstu árum

** Járn á þaki endurnýjað í kringum 2010, einnig voru skólplagnir og neysluvatnslagnir endurnýjaðar á svipuðum tíma

** Parket, ofnar og baðherbergi endurnýjað 2018

** Múr viðgerðir á öllu húsinu og innihurðir endurnýjaðar 2019

** Innkeyrsla hellulögð og húsið málað að utan 2020

** Bárujárn og pappi á bílskúr endurnýjað 2021

** Útidyrahurð endurnýjuð og hleðslustöð sett upp 2022

** Þvottahús og svalarhurð endurnýjað 2023

** Ofn í bílskúr endurnýjaður

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Flísar á gólfi, og þar er fallegur hvítur skápur með góðu plássi

Eldhús: Parket á gólfi, falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum

Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og hvítum fataskáp

Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi

Stofa: Björt og falleg með parketi á gólfi, útgengt er á sólpall frá stofu

Þvottahús: Með flísum á gólfi og góðri þvottahúsinnréttingu. Útgengt í bakgarð frá þvottahúsi

Bílskúr: Rúmgóður með tveim stórum gluggum á hlið og afstúkuð geymsla aftast í skúr

Umhverfi: Stutt í helstu þjónustu, vinsæl staðsetning í Keflavík, innst í botnlanga

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Hátún 34

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð