HÚSASJÁ

Faxabraut 41C

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

181 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1960

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



254 dagar á sölu

sell

79.500.000 kr

440.443 kr/m²

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 4ra - 5 herbergja 131,5fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 49fm bílskúr við Faxabraut  í Reykjanesbæ.

Birt stærð eignarinnar er 180,5fm.

Eignin er staðsett í Holtaskólahverfi örstutt frá skólum, íþróttamiðstöð og sundmiðstöð.

Forstofa er flísalögð.  Innaf forstofu er salerni og góð geymsla undir stiga.

Í eldhúsi eru flísar á gólfi, þar er hvít innrétting með flísar á milli skápa, ofn og helluborð.

Þvottahús er innaf eldhúsi, þar er útgengt út á plan að framanverðu.

Stofa er rúmgóð og hefur hún parket á gólfi, hurð er út á verönd frá stofu.

Herbergin eru þrjú og eru öll á annari hæð, fataskápar eru í herbergjum. Gengið er út á svalir frá hjónaherbergi. Sjónvarpshol er á annari hæð þar sem hægt er að bæta við fjórða herberginu.

Baðherbergi er á annari hæð, þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting, gluggi og sturtuklefi.

Bílskúrinn er 49fm, þar er hiti og rafmagn og geymsla er innst í skúrnum.

*Þrjú svefnherbergi eru á annari hæð en þar er auðveldlega hægt að bæta við fjórða herberginu.

*Búið er að endurnýja alla glugga.

*Búið er að endurnýja þakjárn og þakrennur á húsi og bílskúr.

*Búið er að endurnýja svalahurð á efri hæð.

*Eignin var sprunguviðgerð og máluð sumarið 2024.

*Skjólgóð verönd er á baklóð sem snýr í vestur.

*Ofnalagnir eru um 10 - 12 ára. Forhitari er á miðstöðvarlögn.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Halldór Magnússon lfs.

S. 863-4495 / 420-4000

dori@studlaberg.is

Kort af Faxabraut 41C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu