HÚSASJÁ

Bragavellir 15

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

257 m²

Stærð

5

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1984

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



119 dagar á sölu

sell

131.900.000 kr

512.830 kr/m²

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt 257.2fm einbýlishús þar af ca 50fm bílskúr á frábærum stað við Bragavelli í Keflavík.

Um er að ræða sex herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr.  Eignin er staðsett innst í botnlanga og engin eign er fyrir aftan.

Klikkaðu hér til þess að sjá þrívíddar sýningu eignar

Neðri hæð:

Forstofa er flísalögð. Inn af forstofu er gestasalerni.

Eldhús hefur parket á gólfi, þar er vegleg innrétting og góð tæki, ofn, helluborð og vifta.

Þvottahús er inn af eldhúsi, þar eru flísar á gólfi, góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og hurð er út á plan.

Stofa er parketlögð og gengið er út á stimplaða verönd frá stofu.

Svefnherbergin eru þrjú á neðri hæðinni, þau eru öll parketlögð og skápar eru í þeim öllum.

Á baðherbergi  eru flísar á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuaðstaða stúkuð af með gleri og baðkar.

Efri hæð:

Hol er parketlagt, nýtist vel sem sjónvarpshol. 4 góðar geymslur eru á efri hæð. (undir súð)

Svefnherbergin eru tvö á efri hæð og eru þau bæði mjög rúmgóð, svalir eru út frá öðru herberginu.

Baðherbergi er á efri með upphengdu salerni og sturtuklefa.

Bílskúr er mjög rúmgóður og þar er epoxy á gólfi og hurð út á baklóð. Gott geymsluloft er yfir bílskúr með góðri lýsingu.

*Hiti er í öllum gólfum - öll gólfefni eru nýleg.

*Búið er að endurnýja innhurðir, innréttingar, fataskápa og fl.

*Búið er að endurnýja allar raflagnir, rofa og tengla.

*Búið er að endurnýja neyslulagnir.

*Þakjárn var málað sumarið 2024.

*Skjólgóður sólpallur með heitum potti er á baklóð.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Halldór Magnússon lfs.

s. 863-4495 / 420-4000 -- dori@studlaberg.is --

Kort af Bragavellir 15

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð