HÚSASJÁ

Stóriteigur 29

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

192 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1978

Byggingarár

860 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

139.000.000 kr

722.078 kr/m²

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Stóriteigur 29, 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-4389 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Stóriteigur 29 er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 192.5 fm. Húsið sjálft er 141fm og bílskúrinn 51,5fm.

Eignin stendur á fallegri hornlóð með óskert útsýni þar sem langt er í næstu hús. Húsið hefur ávallt hlotið gott viðhald, en skipt var um útidyrahurð árið 2024 og hluta af timbri undir þakkanti og rennur 2023. Hellulagt er á milli hússins og bílskúrsins en þar er snjóbræðsla.

Um er að ræða forsteypt einbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr á rólegum og einstökum stað.

Söluyfrlit

Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.

Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, bjarklind@borgir.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Flísalögð með þreföldum fataskáp.

Þvottahús: Með tengi fyrir þvottavél, vask, borðaðstaða.

Baðherbergi I: Með sturtuklefa, salerni og vaskaskáp, flísar á gólfi og veggjum.

Svefnherbergi: Með fjórföldum fataskáp, stórum glugga, parketi á gólfi. Hægt er að ganga inní herbergið frá baðherbergi og stofu.

Stofa: Með grænum marmara á gólfi, panil í loftinu og hlöðnum vegg. Gengið út í garð. Gluggar snúa til austurs og suðurs.

Baðherbergi II: Með sturtuklefa,vaski og salerni, flísar á gólfi.

Barnaherbergi I: Með tvöföldum skáp, parketi á gólfi.

Barnaherbergi II: Með tvöföldum skáp, parketi á gólfi.

Barnaherbergi III: Með tvöföldum skáp, parkerti á gólfi.

Eldhús: Stórt eldhús með nýlegri eldavél, stórum borðkrók og stórum gluggum.

Bílskúrinn: Er með steyptu gólfi, tveimur litlum gluggum á annarri hliðinni og fyrir aftan bílskúrinn er góð köld geymsla.

Umhverfi: Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, heilsugæslu, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góðar gönguleiðir og útivist.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Kort af Stóriteigur 29

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu