Reykjavegur 80
01-0101 · 270 Mosfellsbæ



129 dagar á sölu
126.900.000 kr
748.673 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð með bílskúr á stórri eignarlóð
Virkilega fallegt einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Reykjaveg í Mosfellsbæ. Húsið stendur á 1.338 fm eignarlóð með sér innkeyrslu og nægum bílastæðum. Á lóðinni er einnig 12 fm áhaldahús.
Eignin hefur verið endurnýjuð að einhverju leiti á undanförnum þremur árum og býður upp á mikla möguleika. björt, rúmgóð og vel skipulögð rými með góðu flæði milli stofu, borðstofu og eldhúss.
Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri þar sem er skot sem nýtist sem fatahengi eða fyrir fataskáp.
Forstofuherbergi: Herbergi við anddyri með harðparketi á gólfi.
Gestasnyrting: Við anddyri, flísalögð gólf og veggir.
Hol: Stórt og bjart hol sem tengir saman helstu rými hússins.
Stofa og borðstofa:Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi. Frá borðstofuhluta er útgengt á suður verönd með glæsilegu útsýni. Áður voru svefnherbergi þar sem borðstofan er í dag og er möguleiki að breyta því í fyrrahorf.
Eldhús: Vel skipulagt eldhús með góðri innréttingu og eyju með gashelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, flísum á gólfi og útgengi að framanverðu.
Baðherbergi: Endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdri salernisskál, sturtu með gler skilrúmi og snyrtilegri innréttingu með glerhandlaug.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi sem áður var barnaherbergi. Hægt er að breyta því aftur ef þörf er á.
Bílskúr: Bílskúr er skráður 35,7 fm og búinn bæði heitu og köldu vatni, rafmagni og hitaveitugrind sem var endurnýjuð 2019. Þak á bílskúr er komið á tíma.
Utanhúss og lóð: Stór og falleg lóð umlykur húsið. Þar er bjálkaáhaldahús með flotuðu gólfi og rafmagnskyndingu, viðarverönd með húsi yfir grillið, heitur pottur og fiskikar sem nýtist sem kaldur pottur. Þak og þakskegg voru máluð sumarið 2024.
Samantekt:
Á teikningu eru fjögur svefnherbergi en í dag eru einungis tvö svefnherbergi. Auðvelt er að bæta þessum herbergjum við aftur.
Fallegt einbýlishús á stórri eignarlóð sem bíður upp á mikla möguleika.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


































