HÚSASJÁ

Brekkuland 8

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
58 myndir

233 m²

Stærð

6

Herbergi

1982

Byggingarár

1423 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



13 dagar á sölu

sell

165.000.000 kr

709.677 kr/m²

Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is

Einbýlishús, við Brekkulandi 8 í Mosfellsbæ. Húsið er á tveimur hæðum, með stórum sérstæðum bílskúrum/vinnurýmum. Húsið er staðsett á rólegum stað fyrir ofan Álafosskvosina. Í heild er húsið, með skúrum 277,5 fm. Þar af er 60,2 fm bílskúr og viðbyggður skúr um 45 fm. Íbúðarhúsið er 172,3 fm. Frekar stór,1.422 fm eignarlóð.

Húsið byggt úr timbri frá árinu 1982. Það er vel skipulagt og samanstendur meðal annars af

fimm herbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, búri, sjónvarpsholi, bjartri stofu og borðstofu. Útgengt

er út á sólpall í suðvestur. Lóðin er afgirt, skipt upp með ,,hundagirðingu". Á lóðinni stendur

lítill hænsnakofi, sunnan megin, með netbyrgi fyrir hænsnin. Há tré eru í garðinum sem eru

hæfilega staðsett þannig að ekki er um birtuskerðingu að ræða. Leiktæki eru í garðinum og

sandkassi. Stórt malbikað bílaplan fyrir framan bílskúra.

Eignin er einstaklega vel staðsett innan hverfisins með (óbyggðu svæði bak við hús). Gott

útsýni í flestar áttir. Róleg, barnvæn staðsetning í rótgrónu hverfi. Hentar vel fyrir

fjölskyldufólk með hunda ,,léttan iðnað" eða listafólk, með ,,föndur" heima við. Leyfi fyrir

hænsni á lóð.

Nánari lýsing:

Gengið er frá götu, meðfram húsinu, á milli bílskúrs og húss, að aðalinngangi hússins.

Anddyri, inn í neðri hæð húss, sem er flísalagt með fataskáp og fatahengi .

Gestasnyrting með sturtuklefa og klósetti, inn af anddyri. Það er flísalagt.

Miðgangrými/hol með harðparket á gólfi. Þar er vegghengdur skenkur. Á móti er gengið upp

stiga á efri hæð.

Forstofuherbergi, notað sem skrifstofa í dag með harðparketi.

Stofan er þar næst, má skipta í tvö rými, með harðparketi á gólfi. Gengið þaðan út á

sólpall/verönd í suð-vestur.

Við enda verandar, sunnan megin, er heitur pottur með skjólveggjum í kring. Ganga má

þaðan út í garð í suður.

Eldhús er í austurhluta húss, með viðarinnréttingu, með flísum á milli skápa. Span helluborði

með viftu fyrir ofan og bökunarofni fyrir neðan. Borðstofukrókur er frekar stór. Pláss er fyrir

tvöfaldan ísskáp.

Þvottaherbergið er frekar rúmgott, með máluðu stein gólfi. Þar eru innréttingar og skápar.

Inn af því er búr með hillum og góðu hilluplássi. Frá þvottahúsi er smá bíslag með fataskáp.

Hægt er að ganga þaðan út í bakgarð.

Efri hæð:

Þar er hjónaherbergi, sem snýr í suð-vestur, með parketi á gólfi ágætum fataskápum. Þar er

útgengi út á stórar suð-vestursvalir með útsýni. Við hliðina er er eitt svefnherbergi með

fataskápum. Er í dag notað sem skrifstofa.

Í austur enda eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. (bara fataskápur í

öðru herberginu)

Sjónvarpshol er í miðrými með parketi á gólfi. Þar er gluggi í suður með útsýni.

Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta á veggjum, innréttingar, baðkar, gluggi.

Húsið er byggt með kraftsperrum og er efrihæðin að hluta undir súð, sem þýðir meira

gólfrými en fm segja til um.

Rúmgóður bílskúr, 60 fm. Þar er góð vinnuaðstaða. Bílalyfta umsemjanleg . Tvær

bílskúrshurðir. Önnur hurðin er dregin upp en hin hurðin er með gluggum og opnast til hliðar.

Sér gengt inn á milli húsa í skúrinn. Um 8 fm geymsluskúr er bak við bílskúr.

Um 45 fm viðbygging (skráð sem opin bílageymsla) með sér inngengum hurð að framan og út í

bakgarð. Þar er bílskúrshurð. Hlaðinn veggur frá honum í bakgarði. Það er mikið pláss og

niður með að austanverðu lóðinni sem er ,,hlutlaust rými í eigu bæjarins og er opið við

lóðina.

Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.

Kort af Brekkuland 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu