HÚSASJÁ

Bjartahlíð 13

03-0201 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

106 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1993

Byggingarár

3726 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



1 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

751.646 kr/m²

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Rúmgóð og björt 3ja herbergja 106,3 fm íbúð á 2. hæð með fallegu útsýni og rúmgóðum suðursvölum við Björtuhlíð 13 í Mosfellsbæ. Íbúðin er vel staðsett í nálægð við skóla, leikskóla, sundlaug og líkamsræktarstöð.  Einnig er stutt í strætó sem fer á helstu áfangastaði.  Eignin getur verið afhent við kaupsamning.

Eignin er skráð 106,3 fm skv HMS.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með fataskáp, dúkur á gólfi.

Hol tengir saman forstofu, eldhús, stofu og svefnherbergisgang, dúkur á gólfi.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með fallegu útsýni og útgengt á rúmgóðar suðursvalir. Dúkur á gólfi.

Eldhús er með tengi fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð og viftu fyrir ofan, borðkrókur og dúkur á gólfi. Opið inn í stofu úr eldhúsi.

Herbergi I með fataskápum og dúk á gólfi.

Herbergi II með fataskáp og dúk á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar með sturtugleri og opnanlegum glugga. Endurnýjað af fyrri eigendum.

Þvottahús/geymsla innan íbúðar, mjög rúmgott rými með vaski og vaskaborði og hillum.

Sameign - snyrtilegur stigagangur, gólfteppi endurnýjað árið 2025 - á jarðhæð er sameiginleg vagna-og hjólageymsla.  Sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið, hleðslustaur.

Hiti í stétt fyrir framan hús.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is

---------------------------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Bjartahlíð 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð