Laugaból 2
Lóð · 271 Mosfellsbæ



5 dagar á sölu
260.000.000 kr
104.489 kr/m²
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Laugaból - Mosfellsdal.
Um er ræða 215,1 m2 einbýlishús, 55,8 m2 bílskúr, 83,1 m2 hesthús, ásamt 6 gróðurhúsum, samtals um 2.000 m2, á 23.420 m2 skógivaxinni eignarlóð.
Einbýlishúsið er byggt árið 1969. Húsið skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, tvö eldhús, tvö baðherbergi, fimm svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahús m/sér inngangi og kalda geymslu.
Bílskúrinn er skráður 55,8 m2, sem byggður er árið 1975. Rafmagn og hiti er í bílskúrnum sem stendur við hlið einbýlishússins.
6 gróðurhús, þ.e. 540 m2 gróðurhús (nr. 5) byggt árið 1979, 390 m2 gróðurhús (nr. 4) byggt árið 2008, og um 374 m2 gróðurhús óskráð (nr. 2), um 406 m2 gróðurhús óskráð (nr. 1) og 70 m2 vinnuskúr, byggður árið 1958, um 264 m2 gróðurhús óskráð (nr. 3). Bak við íbúðarhúsið er um 70 m2 gróðurhús (var áður sundlaug) óskráð (nr. 6).
Hesthús skráð 83,1 m2 byggt árið 2026, með góðu gerði. Hesthúsið skiptist í fjórar stíur, fóðurgang, hlöðu, hnakkageymslu, salerni og kaffistofu með innréttingu og borðkrók.
Jörðin stendur við Reykjahlíðarafleggjara í Mosfellsdal. Mikill trjágróður er á jörðinni. Hér er einstakt tækifæri fyrir aðila að eignast fallega jörð í Mosfellsdal.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Listi yfir framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá seljanda:
Íbúðarhús: Árið 2015-2016: Vatnslagnir, neysluvatnslagnir heitt og kalt, skólplagnir voru lagðar nýjar frá húsinu. Ný rotþró. Árið 2019: Sólstofa/eldhús byggt í vesturenda húss. Árið 2024: Ný lagnagrind inn í bílskúr. Skipt um járn og pappa á þaki eldri hluta húss. Þak málað á nýrri hluta hússins. Þakkantar endurnýjaður að hluta Árið 2025: Íbúðarhús málað um sumarið. Bílskúr málaður að hluta. Klárað að skipta um þakkantana.
Hesthús: Byggt 2025-2026: Fullbyggt og ónotað. Tilbúið fyrir lokaúttekt þegar búið er að rífa skúr á lóð. Ekki fæst lokaúttekt fyrr en búið að að fjarlægja skúr af lóð.
Öll garðhúsin: 2018-2022: Allir grunnar í garðhúsunum steyptir. Öryggiskerfi/myndavélakerfi sett upp. Nýjar rafmagnstöflur. Nýjar vatnslagnir
Gróðurhús nr. 1 - Árið 2023: Þak uppbyggt í gróðurhúsi. Árið 2025: Nýtt járn og pappi á pökkunarhluta hússins.
Gróðurhús nr. 2 - Árið 2024: Hitarör uppsett norðan megin í húsinu.
Gróðurhús nr. 3 - Árið 2018: Hliðar hússins endurbyggðar, nýtt timbur og plastklæðning. Árið 2019: Hitarör yfirfarin og löguð. Árið 2025: Hitastýring sett inn í húsið.
Gróðurhús nr. 4 - Árið 2020: Ný hitaveiturör lögð norðan megin í húsinu. Árið 2023-2024: Spýtum bætt við í loft. Ný plastklæðning í hluta húss.
Gróðurhús nr. 5 - Árið 2017: Garðhúsið uppbyggt. Allt fjarlægt nema járnvirkið. Nýtt timbur og plastklæðningar. Hitalagnir uppgerðar
Gróðurhús nr. 6 - Árið 2019: Hitalagnir lagaðar og bætt við stýringu á vatni út í heita pottinn og í hesthúsið. Árið 2024: Grunnur lagaður og steyptur upp. Skipt út mæni og ónýtu timbri.
Verð kr. 260.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























































