HÚSASJÁ

Vitastígur 3

01-0201 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

62 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1945

Byggingarár

253 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



207 dagar á sölu

sell

55.900.000 kr

901.613 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg 62 fm rishæð auk geymslu í kjallara við Vitastíg 3 í Hafnarfirði. Íbúðin er rúmgóð miðað við skráðan fermetrafjölda þar sem hún er að hluta undir súð.

Húsið stendur á einstaklega góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.

Vakin er athygli á því að báðar íbúðir hússins eru til sölu og er mögulegt að kaupa þær saman eða hvora fyrir sig.

** Rúmgóð og björt rishæð

**Nýlega endurnýjuð

**Þak og ytra byrði nýlega tekið í gegn

Fyrstu kaupendur eiga möguleika á allt að 90% fjármögnun, skv. reglum viðkomandi lánastofnana.

Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 62 fm, þar af er geymsla 14,9 fm.

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 palli@palssonfasteignasala.is

Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist í sameiginlega forstofu, eldhús sem er opið til stofu og svefnherbergi. 14,9 fm geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi er staðsett í kjallara.

Nánari lýsing á eign:

Sameiginlegur inngangur með íbúð á neðri hæð, flísalögð forstofa og hol. Stigagangur með nýlegu kókosteppi.

Eldhús með nýlegri innréttingu og gott pláss fyrir eldhúsborð. Harðparket á gólfi.

Björt stofa og möguleiki á að bæta við svefnherbergi ef þörf er á. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi með fataskáp

Flísalagt baðherbergi með nýlegri innréttingu og sturtuklefa.

Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla sem gengið er í að utanverðu.

Samkvæmt upplýsingum seljenda var húsið einangrað að utan og klætt báruáli árið 2024. Þakjárn var endurnýjað, strompur klæddur og allir gluggar/gler endurnýjaðir (að undanskildum gluggum í kjallara).

Lagnir og ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta.

Á árinu 2024 var rishæðin tekin í gegn: nýtt baðherbergi, ný eldhúsinnrétting, ný gólfefni, ofnar endurnýjaðir og allt málað.

Húsið lítur einstaklega vel út, bæði að utan og innan. Þetta er falleg og vel við haldin eign á vinsælum stað í Hafnarfirði sem vert er að skoða.

Athugið að húsgögn á myndum eru tölvuteiknuð og sýna mögulega innréttingarmöguleika.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Vitastígur 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð