HÚSASJÁ

Vesturvangur 1

01-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

286 m²

Stærð

5

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1976

Byggingarár

777 m²

Lóð

Garður

Svalir

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



120 dagar á sölu

sell

199.000.000 kr

695.561 kr/m²

Einbýlishús á tveim hæðum á vinsælum útsýnisstað með tvöföldum bílskúr og

aukaíbúð á neðri hæð sem hægt er að leigja út.

Einstaklega fallegt og hlýlegt einbýli á jaðarlóð við Vesturvang 1 í Hafnarfirði. Vel skipulagt, bjart og smekklegt einbýlishús á fallegum stað með miklu útsýni til suðurs, vesturs og norður.

Húsið stendur á frábærri 777 fermetra jaðarlóð umlukið hrauni og fallegri náttúru.

Þetta eru híbýli sem bjóða upp á notalegt fjölskyldulíf  og fjölbreytta nýtingarmöguleika, en búið er að útbúa séríbúð á neðri hæð.

Áhersluatriði:

*Tvöfaldur bílskúr með gryfju

*Hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi.

*Íbúð á neðrihæð með sér inngangi – er nýtt sem leiguíbúð í dag

*Endurhönnuð lóð sumarið 2025.

Komið er inn á efri hæð hússinn í forstofa með flísum á gólfum. Eldhús, stofa og borðstofa liggja saman í björtu alrými með mikilli lofthæð og parketi á gólfum.

Eldhús er með nýja eldhúsinnréttingu, ísskáp og frysti og uppþvottavél.

Á efrihæð er gott sjónvarpshol og 2 svefnherbergi.

Herbergi I: Hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi.

Herbergi II: er sameinað úr tveimur minni herbergjum og er nú xx fm  með skápum.

Stórt og gott baðherbergi er inn á svefnherbergisgangi.

Gólfhiti  er á allri efri hæð.

Neðrihæð:

Gengið er niður hringstiga á neðrihæð en þar er svefnherbergi III sem er rúmgott herbergi með skápum með alrými fyrir framan.

Þaðan er innangegnt í íbúð sem er á neðrihæð.

Íbúðin er með einu mjög rúmgóðu svefnherbergi, stofu, eldhúsi og stóru baðherbergi. Auðvelt er að sameina rýmin aftur. Búið er að setja upp þvottahús í hitarými þar sem lagnir og gólfhiti efrihæðar eru staðsettar.

Innangengt er í rými undir svölum, flísalagt með hita í gólfi, opnanlegum gluggum og tvöfaldri hurð út í garð.

Þar er gert ráð fyrir að hafa úti eldhús, sturtu, vask og þvottavélar. Tvöfaldur bílsskúr með hita, vatni, hurðaopnara og gryfju. Húsinu er vel við haldið af seljendum.

Vatnslagnir endurnýjaðar á efri hæð.

Kominn sökkull fyrir 15 fm hús í garði.

Möguleiki a setja upp heitan pott bakgarði.

Viðhald og endurnýjun

*Hiti og gólf endurnýjað 2019

*Lagnir á baðherbergi og eldhúsi endurnýjaðar 2019

*Þak endurnýjað 2021

*Svalir flotaðar og flísalagðar  2022

*Parket og flísar endurnýjaðar 2019

*Gler endurnýjað í gluggum og opnanleg fög 2020

*Eldhúsinnrétting og gólfefni endurnýjuð 2019

*Möguleiki á að stækka forstofu á efrihæð, búið er að útbúa hitalagnir sem ekki eru tengdar.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Vesturvangur 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44