HÚSASJÁ

Suðurgata 36

01-0201 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

169 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1961

Byggingarár

372 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Bílastæði



381 dagar á sölu

sell

113.000.000 kr

669.431 kr/m²

Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja efri hæð með góðum útsýnissvölum og  bílskúr við Suðurgötu 36B í Hafnarfirði.

Eignin er alls 168,8 fm skv. Fasteignaskrá.

Nánari lýsing:

Sameiginlegur inngangur með neðri hæð.

Flísalögð forstofa.

Fallegur teppalagður stigi upp á hæðina, á stigapallinum er útgengt út á svalir.

Sjónvarpsherbergi/svefnherbergi mjög rúmgott með skápum, er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Gashelluborð með 5 hellum, góður borðkrókur.

Stofa og borðstofa í björtu alrými með gluggum í þrjár áttir, útgengt út á góðar útsýnissvalir.

Hjónaherbergi einstaklega rúmgott með góðum skápum sem ná upp í loft.

Barnaherbergi með parket á gólfi.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, stór sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, vaskinnrétting og opnanlegur gluggi.

Þvottaskápur fyrir framan baðherbergi.

Gólfefni íbúðar parket og flísar á votrými og eldhúsi. Stigi milli hæða er teppalagður.

Bílskúr með heitu og köldu vatni, rafmagn og hurðaopnari, geymslurými íbúðarinnar er í enda bílskúrs. Einfalt gler í bílskúr.

Fallegur bakgarður sem deilist með neðri hæðinni.

Hiti í bílaplani

Eignin er steinsteypt tveggja hæða hús með þremur íbúðum.

Ekkert starfandi húsfélag er í húsinu.

Útsýni af svölum yfir miðbæ Hafnarfjarðar, kvöldsól.

Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:

-Rafmagn endurnýjað

-Skipt um gler fyrir utan einn glugga og bílskúr.

-Bílaplan hellulagt og settur hiti, bæði bílastæði tilheyra efri hæðinni.

-Handrið á svölum nýtt.

Frábært staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Suðurgata 36

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu