Stuðlaberg 90
01-0101 · 221 Hafnarfirði



24 dagar á sölu
129.900.000 kr
758.762 kr/m²
Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.
Glæsilegt 171,2 fm parhús með bílskúr við Stuðlaberg 90 í Setberginu, Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að neðri hæðin er 76,6 fm, efri hæðin 76,6 fm og bílskúrinn 18,0 fm, samtals 171,2 fm skv. HMS.
Neðri hæð: Forstofa með skáp. Gestasalerni innaf forstofu. Eldhús með innbyggðum ísskáp, frystiskáp og uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir, kvartz-steins borðplata. Þvottahús er innaf eldhúsi, útg. á lóð. Stofa og borðstofa í björtu alrými með útg. á lóð. Stigi upp á efri hæð úr alrými.
Efri hæð: Hol/Gangur með aukinni lofthæð. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni, þ.m.t. hjónaherbergið, en eitt herbergið var áður fjölskyldu- / sjónvarpsrými skv. teikningum. Geymsla er á hæðinni þar sem búið er að útbúa fataherbergi. Baðherbergi með sturtu veggsalerni og handklæðaofn.
Lóðin: Snyrtilega frágengin með sólpalli, hellulagðri verönd ásamt grassvæði.
Bílskúrinn er með rúmgóðu geymslulofti sem ekki er skráð í birt flatarmál.
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð að innan, mest árið 2018:
- Sett voru ný gólfefni
- Baðherbergi tekin í gegn, þ.e. flísar, salerni og aðrir sjáanlegir hlutir. Á efri hæð voru lagnir á baðherbergi einnig endurnýjaðar skv. fyrri eigendum.
- Eldhúsinnrétting, borðplata og tæki.
- Þvottahús flísalagt og settur nýr vaskur.
- Gólfhiti settur á neðri hæð þar sem er harðparket. Einnig er rafmagns-gólfhiti á baðherbergi efri hæðar.
- 2019 var farið í viðhald á bílskúrnum þar sem hann var múraður að utan, veggir málaðir 2020. Þak bílskúrs ásamt þakkant og bílskúrshurð málað 2022.
- Húsið var málað að utan 2023.
- Grindverk að framan var málað og endurnýjað 2024-2026.
- Þak var málað 2025, vinnu þó ekki lokið að fullu.
Nánari upplýsingar um framkvæmdir undanfarinna ára má sjá í skjali hjá fasteignasala.
Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, golfvöll, íþróttasvæði FH og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















































