HÚSASJÁ

Smárabarð 2

01-0202 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

116 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1987

Byggingarár

1957 m²

Lóð

Garður

Þvottahús



191 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

648.485 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og fallega 115,5 fm. 4ra herbergja íbúð að Smárabarði 2D, 220 Hafnarfjörður. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, forstofu, baðherbergi, og þvottahús innan íbúðar.

Nánari lýsing:

Forstofa með rúmgóðum fataskáp og flísar á gólfi.

Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa og á gólfi.

Stofa er með parket á gólfi og útgengi á svalir til vesturs.

Baðherbergi er með baðkari með sturtu yfir, vegghengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi og veggjum.

Hjónaherbergi er með rúmgóðum skápum og parket á gólfi. Útgengi á svalir til vesturs.

Barnaherbergi I er með fataskáp og parket á gólfi.

Barnaherbergi II er með parket á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar og þar er búið að setja auka salerni og vask.

Sérgeymsla er í sameign.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða í tölvupósti á kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða í tölvupósti á katarzyna@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Smárabarð 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu