HÚSASJÁ

Sléttahraun 25

02-0303 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

84 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1966

Byggingarár

Garður

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

61.900.000 kr

733.412 kr/m²

Hilmar Arnarson, aðstoðamaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:

Bjarta og vel skipulagða, þriggja herbergja, 84,4 fm íbúð á 3.hæð (efstu) á vinsælum stað við Sléttahraun 25 í Hafnarfirði.

Eignin er skráð 84.4 fm. og skiptist íbúðin í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og björt stofa- og borðstofa með útgengt út á suðvestur svalir. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð með góðu aðgengi.  Íbúðinni fylgir sérgeymsla 6,6 fm. sem er staðsett í snyrtilegri sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu. Húsinu og stigaganginum hefur verið haldið vel við.

Íbúðinni fylgir einnig réttur til byggingar bílskúrs á lóðinni skv. eignaskiptalýsingu.

Björt og góð eign með mikla möguleika í góðu fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir.

Smelltu hér til að fá allar upplýsingar um eignina

* Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson í síma 823-3673 eða hilmar@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: nýlegt parket á gólfi, innbyggður fataskápur með rennihurðum.

Eldhús: dúkur á gólfi, eldhúsinnrétting orðin gömul og kominn tími á endurbætur, stór og bjartur opnanlegur gluggi.

Svefnherbergin: eru tvö, mjög rúmgóð og björt. Innbyggður fataskápur er í hjónaherbergi. Eldra parket er á gólfum. Útsýni út á Kaplakrikann FH.

Stofa- og borðstofa: er í opnu og björtu rými með útgengt út á suðvestur svalir. Nýlegt parket á gólfum.

Baðherbergi: er með sturtubaðkari. Gott skápapláss. Stór opnanlegur gluggi og dökkar flísar á gólfi.

Sameiginlegt þvottahús: er á hverri hæð og því aðeins 3 íbúðir með hvert þvottahús. Aðgengi íbúðar að þvottahúsi á hæð er mjög gott.

Sérgeymsla: er staðsett í sameign um 6,6 fm. með glugga og rafmagni og einnig er rúmgóð hjóla- og vagnageymsla staðsett í snyrtilegri sameign.

Garður: er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.

Lóð: er snyrtileg og fjöldi bílastæða er fyrir framan húsið.

- Ofn í stofu hefur nýlega verið endurnýjaður og þá á sama tíma var skipt um parket í öllu alrými ásamt því að stofan var máluð.

- Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta.

- Skipt var um teppi í sameign og sitgagangur málaður 2023.

- Þak var yfirfarið 2018.

- Eignin býður upp á mikla möguleika en þarfnast endurbóta að einhverju leyti

Nánari upplýsingar gefur Hilmar Arnarson, aðstoðamaður fasteignasala í síma 823-3673, hilmar@remax.is

Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Sléttahraun 25

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu
Sléttahraun 25, 02-0303 | Húsasjá