Móabarð 34
01-0102 · 220 Hafnarfirði



29 dagar á sölu
55.900.000 kr
878.931 kr/m²
Virkilega falleg og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli á góðum stað á Holtinu í Hafnarfirði.
Eignin er alls 63,6 fm og skiptist þannig að íbúðin er 58 fm og geymsla 5,6 fm skv. fasteignaskrá.
Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með skáp og opnu fatahengi
Eldhús og stofa í björtu og rúmgóðu alrými.
Eldhús með hvítri innréttingu, innfelldri uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp. Flísar á gólfi.
Herbergi með góðum skápum og útgengt út á suðvestur svalir.
Baðherbergi með "walk-in sturtu", handklæðaofn, upphengt salerni og fallegri vaskinnréttingu.
Geymsla í kjallara með máluðu gólfi og hillum.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara ásamt hjóla-og vagnageymslu.
Öll sameign mjög snyrtileg og vel umgengin.
Næg sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið.
Eignin er í útleigu til 01.07.2026 en möguleiki á áframhaldandi leigu ef það hentar kaupanda.
Falleg eign á þessum vinsæla og rótgróna stað í Hafnarfirði,
þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, strætó, tengibraut, miðbæ Hafnarfjarðar og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



























