HÚSASJÁ

Lækjargata 12

01-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
67 myndir

258 m²

Stærð

8

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1927

Byggingarár

579 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



107 dagar á sölu

sell

199.000.000 kr

768.637 kr/m²

Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs kynna :

Einbýlishúsið "Þórsmörk" við Lækjargötu 12 í Hafnarfirði. Einstaklega sjarmerandi og vel við haldið einbýli með fallegu útsýni yfir lækinn. Húsið er steinsteypt á þremur hæðum ásamt kjallara. Steypt girðing er umhverfis 579fm garð sem er með fallegum grjóthleðslum og trjágróðri. Tvö bílastæði eru á lóð. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :

Mið hæð : komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þaðan er komið inn í rúmgott hol með náttúruflísum á gólfi. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með fiskabeina parketi á gólfi. Mjög fallegir kverklistar og rósettur í loftum. Gluggar á þrjá vegu. Eldhúsið var endurnýjað fyrir um 20 árum síðan. Sér smíðuð innréttingu með miklu skápa plássi, flísar á milli skápa, mahogny borðplötur, stór gaseldavél, tengi fyrir uppþvottavél, náttúruflísar á gólfi. Opið er inn í borðstofu frá eldhúsi.

Efri Hæð :

Frá holi miðhæðar er rúmgóður stigi upp á efri hæðina. Komið er upp á gang með parketi á gólfi, við enda gangsins er útgengt út á litlar svalir sem snúa út að læknum. Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket á gólfi. Annað rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa og fallegu standandi pottjárns baðkari, flísar á gólfi og veggjum. Gott þvottahús með dúk á gólfi. Innbyggður geymsluskápur undir stiga.

Efsta hæð :

Frá holi miðhæðar er stigi upp á rishæðina. Komið er upp í rúmgott sjónvarpshol með gluggum á tvo vegu. Möguleiki á að útbúa gott svefnherbergi. Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi. Annað minna herbergi með parketi á gólfi.

Kjallari :

Frá holi miðhæðar er steyptur stigi niður í kjallarann. Komið er í rúmgott hol með skápum. Mjög rúmgott herbergi/stofa með parketi á gólfi. Innaf því er annað rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa, flísar á gólfi. Mjög rúmgóð geymsla er inn af holi.

Annað :

Búið er að skipta um alla glugga í húsinu fyrir utan 2 í risi. Einnig hafa frárennslislagnir verið endurnýjaðar og dren lagnir einnig.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Kort af Lækjargata 12

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð