Lindarhvammur 2
01-0101 · 220 Hafnarfirði



319 dagar á sölu
74.900.000 kr
680.909 kr/m²
Eignatorg kynnir: Opið hús Lindarhvammi 2 þriðjudaginn 3. mars milli kl. 19:00 og 19:30.
Sérlega skemmtileg 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð í afar fallegu tvíbýlishúsi. Húsið stendur við opið svæði á rólegum og fallegum stað. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Eignin getur verið laus mjög fljótlega. Falleg lóð.
Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 110 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Geymsla er undir útitröppum. Hol með parketi á gólfi. Stofa með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Þvottahús með máluðu gólfi, glugga og vinnuborði. Sjónvarpshol með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Herbergi með parketi og skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi, línskáp, handklæðaofni, baðkari, innréttingu og glugga. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, skápum og gluggum á tvo vegu. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, kvörn í vaski, borðkrók og gluggum á tvo vegu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























