Laufvangur 8
04-0301 · 220 Hafnarfirði



1 dagar á sölu
59.900.000 kr
825.069 kr/m²
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð ( efstu) við Laufvang 8 í Hafnarfirði
Eignin er alls 72,6 fm og skiptist þannig að íbúð er 65,9 fm og geymsla 6,7 fm skv. fasteignaskrá.
Nánari lýsing:
Forstofa björt með góðum glugga og parket á gólfi.
Stofa með parket á gólfi og útgengt á góðar suður svalir.
Eldhús fallegt með viðarinnréttingu, parket á gólfi. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Borðkrókur í enda eldhúss.
Þvottahús er innaf eldhúsi með glugga, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, hillur og vaskur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtubaðkari, opnanlegum glugga, vaskinnréttingu og skáp. Flísar á gólfi og veggjum.
Góð sérgeymsla á jarðhæð ( 6,7 fm)
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Hleðslustæði á sameiginlegu bíla
Hjá húsfélagi hússins er starfandi húsvörður sem sér um þrif , viðhaldsvinnu, snjómokstur og önnur tilfallandi verkefni.
Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:
Parket 2017
Hurðar 2017
Borðplata, flísar milli skápa og tæki í eldhúsi 2024.
Svalir og gluggar málað 2025
Gluggi í svefnherbergi og forstofu endurnýjaðir 2024
Gluggar á suðurhlið endurnýjaðir 2016
Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað í Norðurbænum í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, tengibrautir, verslanir og veitingastaði.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















