HÚSASJÁ

Klukkuberg 15

01-0205 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

134 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1991

Byggingarár

7946 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla



91 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

591.011 kr/m²

Opið hús milli kl. 17.00 og 18.00 þriðjudaginn 27. janúar n.k. - VERIÐ VELKOMIN  !

Falleg fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi, ásamt góðum bílskúr. Glæsilegt útsýni.

Birt stærð eignarinnar er samtals 133,5 fm - birt stærð íbúðar 106,5 fm (þ.a. geymsla 5,4 fm) og birt stærð bílskúrs er 27,0 fm.

Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri við leikskóla og grunnskóla  auk þess er stutt á gólfvelli  og stór útivistarsvæði.

Neðri hæðin skiptist forstofu, gesta snyrtingu, stofur, stigahol og opið eldhús. Efri hæðin skiptist í þrjú herbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing: Á neðri hæðinni er komið inn um sérinngang inn í forstofu með gólfflísum og nýlegum fataskáp. Gesta snyrting með gólfflísum  og skápum. Parketlögð dagstofa. Parketlagt stigahol. Parketlögð borðstofa og opið eldhús með span Simenz helluborði (án háfs/viftu) og AEG ofni. Á efri hæðinni er komið inn á parketlagðan gang með þakglugga. Parketlagt herbergi með fatskáp. Flísalagt baðherbergi með baðkari, glugga baðinnréttingu og tengingu fyrir þvottavél. Parketlagt herbergi með fataskáp og svaladyrum út á suðursvalir með nýlegu tréverki á svalargólfi. Parketlagt herbergi.

Á jarðhæð er geymsla íbúðarinnar með mikilli lofthæð. Sameignleg 31,8 fm hjólageymsla er í sérbyggðu húsi framan við innganga.

Bílskúr íbúðarinnar stendur í bílskúrsröð (merktur 09-0101). Bílskúrin er rúmgóður með heitu og köldu vatni, hitaofni, rafmagni og rafdrifnum hurðaropnara.

Falleg og björt íbúð með glæsilegu útsýni.

Nánari upplýsingar veitir: Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, geir@husasalan.is.

Kort af Klukkuberg 15

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð