Hlíðarþúfur 400
04-0107 · 221 Hafnarfirði



64 dagar á sölu
9.500.000 kr
207.424 kr/m²
Domusnova fasteignasala kynnir: 45,8 fm. hesthús með millilofti, n.t. endahús nr. 415 að Hlíðarþúfur 400 við Kaldárselsveg, 221 Hafnarfjörður, með þremur stíum, hlöðu, hnakkageymslu, snyrtileg kaffistofa, salerni og góðu geymsluplássi.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. // s. 691-4591 // sjofn@domusnova.is
Hesthús nr. 415 er endahús sem innréttað er fyrir 6 hesta í 3 x 2ja hesta stíum. Eignin er skráð 45,8 fm. en raunstærð er stærri þar sem vel nýtt milliloft er ekki talið með í birtum fm.fjölda. Sérinngangur er bæði gerðismegnin og hlöðumegin. Innan eignar eru þrjár stíur, hlaða með geymslulofti, hnakkageymsla, millilofti með kaffistofu og salerni. Kaffistofan er með snyrtilegri innrétting, stórum glugga inn í hesthús og opnanlegum gluggi á gafli hússins. Parket á gólfi. Á salerni er viðarinnrétting, handlaug og gólfsalerni. Parket á gólfi. A.T.H. Milliloft: Notast er við rafknúinn stiga til að fara á upp á milliloft sem staðsettur er á fóðurgangi. Húsið er mjög snyrtilegt og hefur góða aðstöðu fyrir hesta og menn.
Lóðin er sameiginlega með fjórum hesthúslengjum sem liggja að sameiginlegu stóru gerði í miðjunni sem hefur nýlega verið skipt um möl í. Sameiginleg taðþró er fyrir húsin.
Svæðið er með einstaka aðstöðu fyrir hesta og menn og hefur undanfarið verið gert mikið til að auka við aðstöðuna, m.a. er komin glæsileg reiðhöll fyrir félagsmenn í viðbót við þá inniaðstöðu sem var fyrir, stór þjálfunargerði eru á svæðinu sem og keppnisvellir. Fjölmargar skemmtilegar reiðleiðir, m.a. er upplýst reiðleið milli Hlíðarþúfna og Sörlaskeiðs, og reiðleið um Smyrlabúðarhraun sem tengir Sörlasvæðið við reiðleiðir í Heiðmörk.
-- AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING --
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















