HÚSASJÁ

Kaldakinn 25

01-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

93 m²

Stærð

3

Herbergi

1

Baðherbergi

1954

Byggingarár

456 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

750.806 kr/m²

Andri Freyr Halldórsson lgfs & Lind kynna til sölu:

Vel skipulagða 93,1 fm skáð fjögurra herbergja en er í dag 3 herbergja neðri sérhæð með sérinngangi á rólegum og fallegum stað að Köldukinn 25.

Fyrir framan íbúðina er hellulagður sérafnotaflötur og gróinn garður. Opið svæði er við suðurenda lóðarinnar.

Skráð stærð eignar skv. FMR er 93.1 fm. Íbúðin er merkt 01-01.

Nánari upplýsingar veita:

Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS

*Sérhæð, jarðhæð.

*Rúmgóð eign.

*Möguleiki á 3 svefnherberginu.

Eignin skiptist í:

Forstofa, hol, stofa, eldhús & borðstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri: flísar á gólfi við inngang með fatahengi og harðparket á gólfum.

Eldhús: bjart og rúmgott, með nýlegri svartri eldhúsinnréttingu.

Stofa & borðstofa: rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.

-Möguleiki á þriðja svernherbergi.

Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum. Viðarlituð innrétting með handlaug, upphengt WC og sturtuklefi. Gluggi með opnanlegu fagi.

Hjónaherbergi: bjart herbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 2: rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 3: með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Þvottahús: sameiginlegt þvottahús

Geymsla: sér geymsla fylgir íbúðinni einnig er í kjallara er sameiginleg geymsla sem í dag er opið rými og skiptist jafnt á milli hæða.

Kaldakinn 25 er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað í suðurbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða gróið og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki og alla helstu þjónustu. Miðbær Hafnarfjarðar, Tjörnin og falleg útivistarsvæði eru í þægilegu göngufæri. Góðar samgöngur og greiður aðgangur að helstu stofnbrautum tryggja þægilegt aðgengi að öðrum hverfum bæjarins og höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar veita:

Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.

Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Kaldakinn 25

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð