HÚSASJÁ

Hverfisgata 50

01-0201 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
53 myndir

172 m²

Stærð

5

Herbergi

5

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1926

Byggingarár

143 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



252 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

672.197 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Pálsson kynnir :

Glæsilegt einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar.

Virkilega fallegt og einstaklega sjarmerandi einbýlishús á frábærum stað í Hafnarfirði.

Húsið er á 3 hæðum með miklum möguleikum í útleigu, fallegur stór suðurpallur og

Örstutt frá miðbæ Hafnarfjarðar með iðandi mannlífi og veitingastöðum. Stutt í skóla, leikskóla og framhaldsskóla.

-  Einstök eign í hjarta Hafnarfjarðar

-  Aukaíbúð á jarðhæð – frábær til útleigu

-  Vel við haldið og mikið endurnýjað

- Nýtt þak 2025

Nánari upplýsingar veitir: Inga Reynis í síma 820-1903 eða á inga@palssonfasteigna.is

Eignin er skráð með tveim fasteignanúmerum en seld í einu lagi.

Eign 172,4 og Eign 50,5

Heildar fermetrafjöld 223 fm

Heildar fasteignamat  fyrir 2026 er 132.700.000 mkr.

Búið er að breyta aðeins skipulaginu á litlu íbúðinni þannig að hluti hennar nýtist með stærri eigninni til að auðvelda útgengi út í garð.

Eignaskiptasamningi hefur ekki verðið breytt í samræmi við þetta en auðvelt er að breyta aftur í fyrra horf.

Jarðhæð – aukaíbúð:

Rúmlega 55 fm studio íbúð með sérinngangi. Alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi og hjónarúmi, baðherbergi og góð geymsla. Parket á gólfum og flísar á baðherbergi.

Hentar vel til útleigu. Hægt er að opna á milli og tengja jarðhæð við húsið.

2. hæð

Forstofa björt og góð forstofa með flísum á gólfi.

Hol er bjart með útgengni út á suður svalir og parket á gólfi.

Eldhús er með góðri innréttingu með steyptum vask, spanhelluborði, ofni og háf. Háir skápar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Parketi á gólfi.

Stofa/borðstofa  eru rúmgóð og björt með glugga á 3 vegu og parket á gólfi.

Gengið er upp stiga á efri hæðina með kókósteppi og virkilega fallegum glugga með ártali hússins.

3, hæð

Hjónaherbergi rúmgott með útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.

Herbergi með skápum og  parketi á gólfi.

Herbergi með skápum og  parketi á gólfi.

Herbergi með stórum skápum og parket á gólfi.

Baðherbergi er með upphengt salerni, góðri innréttingu, baðkar og gluggi. Flísalagt í hólf og gólf,

Þvottahús er á jarðhæð með vaski í innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt glugga. Vínylflísar á gólfi.

Gengið er niður úr forstofu og þaðan niður í rými sem er nýtt sem vinnuaðstaða í dag, var áður partur af litlu íbúðinni. Þar er hurð beint út í garð.

Garðurinn er í suður og er mjög skjólgóður, stór pallur og 15 fm geymsluskúr.

.

Framkvæmdir á eigninni undanfarin ár að sögn seljenda.

2021: Rafmagn á miðhæð hússins endurnýjað og ný rafmagnstafla.

Neysluvatn, ofnar og ofnalagnir að hluta.

Skipt um gólfefni á miðhæð og forstofan flísalögð.

Stigar teppalagðir og byggður pallur.

2023: Húsið málað að utan.

2024-2025: Þak og rennur endurnýjað. Ný útidyrahurð og eldavél í auka íbúð. Skipt um allt gólfefni á efstu hæð

og nýr ofn í herbergi uppi.

Bætt við eldhúsinnréttingu.

Skipt um teppi á stiga og annað gólfefni í kjallara.

Baðherbergi tekið í gegn, nýtt salerni, vaskur og vaskinnrétting, nýjar flísar á gólfi, baðkari og veggjum.

Þetta er virkilega falleg eign með miklum möguleikum á frábærum stað í gamla bænum í Hafnarfirði.

Möguleiki á að hafa leigutekjur af litlu íbúðinni eða nýta allt húsið sem eitt.

Hér er allt innan seilingar – verslanir, kaffihús og skólar - bæði grunnskóli (Lækjarskóli), framhaldsskóli (Flensborg) og leikskóli (Hörðuvellir).

Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 8201-1903 eða á netfanginu inga@palssonfasteignasala.is

Kort af Hverfisgata 50

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð