HÚSASJÁ

Hjallabraut 70

03-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
68 myndir

316 m²

Stærð

7

Herbergi

3

Baðherbergi

1978

Byggingarár

2442 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



229 dagar á sölu

sell

148.870.000 kr

470.512 kr/m²

*** EIGNIN ER KOMIN AFTUR Í SÖLU ***

Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir stórt raðhús á góðum stað í Hafnarfirði með innbyggðum bílskúr og rúmgóðri 4ra herbergja íbúð á neðri hæð. Hentar vel fyrir stóra fjölskyldu sem nýtir allt húsið eða vera með íbúðina sér eins og hún er nýtt í dag.

Eignin skiptist í miðað við núverandi skipulag: Forstofu, eldhús, stofu, sex svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestasnyrting, tvær stofur og bílskúr. Hægt væri að setja upp nokkur herbergi til viðbótar með því að skipta einu herberginu og fórna stofunni á neðri hæð.

Að sögn seljanda hefur viðhald síðustu ára verið

* Hiti settur í gólf á baðherbergi efri hæðar.

* Skipt um járn á þaki árið 2018.

* Ný gólfefni á efri hæðinni þ.e. alrými, hjónaherbergi og einu barnaherbergi 2021

* Skipt um rafmagnstengla-og rofa í öllu húsinu 2021.

* Loftræting yfirfarin, þrifin og nýr mótor settur 2024.

Góð aðstaða er fyrir framan húsið en þar er búið að setja upp pall og skjólvegg í suður, snýr afar vel gagnvart sólu. Hiti er fyrir framan bílskúr, tröppum og hluta neðri hæðar.  Geymsla undir tröppum. auka flísar fylgja með húsinu.

Nánari lýsing:

Efri hæð

Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús er bjart með tveimur stórum gluggum og opnanlegu fagi, hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn og combiofn í vinnuhæð. Tengi er fyrir uppþvottavél. Helluborð og háfur. Frístandandi eyja sem hægt er að sitja við. Harðparket á gólfi.

Stofan er björt og opin inn í eldhús að hluta. Í dag er stofan skipt í sjónvarpsrými, stofu og borðstofu. Stórir guggar hleypa góðri birtu inn í rýmið. Fallegur arin er í miðri stofu sem sem skemmtilegan svip. Harðarket á gólfi.

Svefnherbergin eru þrjú, gætu verið fjögur, tekin var niður veggur og þar sem tvö herbergi voru er nú eitt, auðvelt væri að setja upp veggin aftur og hurðin inn í herbergið er til og fylgir með húsinu.

Baðherbergið er með innréttingu undir og við handlaug, sturtu með hertu gleri, upphengdu salerni, handklæðaofni. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi flísum á gólfi og veggjum. Gólfhiti

Stigi er á milli hæða sem hefur verið lokaður þar sem eignin á neðr hæð er í útleigu.

Neðri hæð.

Komið inn í forstofu/ hol inn um sér inngang, þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Stór stofa. Eldhús með viðar innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og þrjú svefnherbergi. Stór geymsla og baðherbergi. Hægt er að ganga út í bakgarð frá eldhúsi.

Bílskúrinn er skráður 31,1m og er með heitu og köldu vatni, (mynd vantar)

Háaloft/geymsla, uppgengt (lúga) frá bílskúr.

Teikning á neðri hæð vantar. Teikning efri hæðar sem er í auglýsingu þessari hefur aðeins verið breytt til að gefa betri mynd á núverandi skipulagi.

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.

Kort af Hjallabraut 70

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð