Hjallabraut 5
03-0301 · 220 Hafnarfirði



143 dagar á sölu
65.900.000 kr
646.078 kr/m²
RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð við Hjallabraut 5 í Hafnarfirði.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu í sameign. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 102 fm, þar af er íbúðin 97,1 fm og geymslan 4,9 fm.
** Fasteignamat 2026: 64.950.000 kr.
** Þvottahús innan íbúðar
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og fataskápur
Eldhús: Parket á gólfi. Eldhúsinnrétting með vaski, helluborði og bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur og gluggi í rýminu.
Þvottahús: Inn af eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og gluggi í rýminu.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Rúmgott rými. Útgengt út á rúmgóðar svalir.
Barnaherbergi: Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Pakret á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðinnrétting, baðkar og upphengt salerni. Gluggi í rýminu.
Geymsla: Staðsett í sameign hússins.
Húsið hefur nýlega fengið gott viðhald, sjá hér að neðan:
2022 Húsið var yfirfarið og framkvæmdir í kjölfarið þar sem ýmis viðhaldsvinna var framkvæmd.
2017 Múrviðgerðir á svölum (að hluta). Endurnýjun á gleri og glerlistum (að hluta). Endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum. Endurnýjun á þakklæðingu (aluzink og pappi). Endurnýjun á hluta glugga og hurða. Málun á endursteyptum flötum, svölum og filtuðum flötum. Málun á gluggum og hurðum, þ.m.t. póstum og körmum.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















