HÚSASJÁ

Háakinn 5

01-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

90 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1955

Byggingarár

450 m²

Lóð

Garður

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

774.086 kr/m²

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu mikið endurbætta 4–5 herbergja hæð við Háukinn 5 í Hafnarfirði með stakstæðum geymsluskúr á lóð sem búið er að innrétta sem herbergi. Nýleg timburverönd framan við hús.

Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 90,3 fm, þar af er 15 fm geymsluskúr á lóð.

Eignin skiptist í forrými/hol, stofu, eldhús, 2–3 svefnherbergi og baðherbergi. Eigninni fylgir stakstæður geymsluskúr á lóð sem innréttaður hefur verið sem herbergi, auk hlutdeildar í sameign og sameiginlegu þvottahúsi.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Nánari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing

Forstofa / hol: Með fatahengi, harðparket á gólfi.

Eldhús: Með nýlegri innréttingu, harðparket á gólfi með gólfhita.

Stofa og borðstofa: Í opnu og björtu rými með eldhúsi. Innbyggð uppþvottavél og stór kæliskápur sem fylgir. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi I: Með fataskáp, harðparket á gólfi.

Svefnherbergi II: Með fataskáp, harðparket á gólfi.

Svefnerbergi III: Harðparket á gólfi með gólfhita.

Baðherbergi: Að mestu endurnýjað, að hluta flísalagt, upphengt salerni og dúkur á gólfi.

Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara.

Geymsluskúr á lóð: Stakstæður 15 fm skúr á baklóð sem hefur verið innréttaður sem íbúðarherbergi með baðherbergi og eldhúskrók. Nettenging er til staðar og vínilparket á gólfi.

Húsgjöld eignar eru 7.480 kr. á mánuði.

2019 – Endurnýjun íbúðar:

Íbúðin var tekin í heildstætt gegn árið 2019. Öll gólfefni voru fjarlægð, gólf múruð og flotuð og nýtt parket lagt. Gólfhiti var settur í eldhús og eitt herbergi. Eldhúsið var flutt í eitt af svefnherbergjunum og opnað inn í stofu, sem skapaði opið og bjart rými. Sett var upp ný IKEA eldhúsinnrétting ásamt nýjum ofni, eldavél og innbyggðri uppþvottavél, auk þess sem ný rafmagnstafla var sett fyrir eldhúsið.

Allar innihurðir í íbúðinni voru endurnýjaðar og sett var eldvarnarhurð fram á gang. Allir gluggar voru endurnýjaðir nema á baðherbergi. Rafmagn var að stórum hluta endurnýjað og rafmagnstafla stækkuð. Þá voru settir nýir fataskápar í tvö herbergi og netsnúra lögð undir parket í öll herbergi.

Á baðherbergi var sett upp upphengt salerni, nýr sturtuklefi, vaskur með vaskaskáp og tveir handklæðaskápar.

2021–2022 – Framkvæmdir við húsið:

Á árunum 2021–2022 var húsið sprunguviðgert, heilmúrað og málað. Þak var viðgert og málað og allir gluggar í sameign endurnýjaðir. Tröppur voru brotnar upp og endurgerðar með hita.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Kort af Háakinn 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð