HÚSASJÁ

Eyrarholt 3

02-0101 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

101 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1991

Byggingarár

2925 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

68.700.000 kr

678.184 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Snyrtilega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með fallegu útsýni og suðursvölum að Eyrarholti 3, 220 Hafnarfirði. Íbúðin er í litlu og rólegu fjölbýlishúsi. Samtals birt stærð séreignar 101,3 fm. Stutt í alla helstu þjónustu; í göngufæri eru verslanir, skólar, leikskólar og góðar samgöngur.

Nánar tiltekið eign merkt: 201, fastanúmer 207-4498, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Stærð íbúðar Eignin Eyrarholt 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-4498, birt .stærð 101.3 fm.

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Sérgeymsla í kjallaraRúmgóðar suðursvalir með útsýniSér þvottahús innan íbúðarLítið og rólegt fjölbýliGóð staðsetning – stutt í þjónustuEignin skiptist í:

Forstofu/hol, stofu og eldhús í alrými, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, suðursvalir, sérgeymslu í kjallara.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Rúmgóð forstofa með nýlegum skápum, parket/flísar á gólfi.

Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa í björtu alrými; útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.

Eldhús: Hvítt U‑laga eldhús með flísum milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók með útsýni. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Svefnherbergi 2: Með nýlegum fataskáp, parket á gólfi.

Baðherbergi: Snyrtileg hvít innrétting, flísalagt í hólf og gólf, salerni, sturta, baðkar og gluggi.

Þvottahús: Inni í íbúð, með innréttingu, skolvaski og skápum, flísar á gólfi.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara; auk þess sameiginleg hjóla-/vagnageymsla.

Bílastæði: Sameiginleg malbikuð stæði við húsið.

Lóð/bílastæði: Malbikuð bílastæði við húsið, falleg gróin lóð.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali , í síma 661 7788, tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.

Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Eyrarholt 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu