HÚSASJÁ

Einiberg 27

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

200 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1984

Byggingarár

760 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús



40 dagar á sölu

sell

139.700.000 kr

698.151 kr/m²

OKKUR ER UMHUGAÐ UM KOLEFNISSPORIÐ, SVO SÝNINGIN FELLUR SJÁLFKRAFA NIÐUR EF ENGINN BÓKUN BERST FYRIR KL. 18:00 DAGINN FYRIR.

WE CARE ABOUT THE CARBON FOOTPRINT, SO THE SHOWING WILL BE CANCELLED IF NO BOOKINGS ARE MADE BY 18:00 THE DAY BEFORE.

*** SÖLUSÝNING: EINIBERG 27, MIÐVIKUDAGINN 18. FEBRÚAR 2026 KL 17:00-17:30. ÁSDÍS RÓSA ÁSGEIRSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: +3548957784 EÐA EMAIL: ASDISROSA@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Einiberg 27.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.

EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.

IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Gott einbýlishús á einni hæð innst í botnalagna við Einiberg 27, 220 Hafnarfjörður. Húsið er skráð 200,1 fm hjá HMS (þar af bílskúr 23 fm), Garðurinn er gróinn með palli, gróðurhúsi og gróðri. Einiberg er vel staðsett í grónu, skjólsælu og rólegu hverfi þar sem er stutt í allt hvort sem er náttúruna eða miðbæinn. Stutt í stofnbrautir. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EINIBERGI 27

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA 3D SÝNINGU AF HÚSINU

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA DRÓNAMYNDBAND AF HVERFINU

Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Gestasalerni með flísum á gólfi. Rúmgott eldhús með U-laga innréttingu, efri og neðri skápum, gluggar og borðkrókur, korkur á gólfi. Við hlið eldhúss er borðstofa og sjónvarpshol og þaðan er gengið inn í stóran garðskála með arni, flísalögðu gólfi og stórum þakglugga. Frá garðskála er gengið út á pall og þaðan út í garð með gróðurhúsi. 4 svefnherbergi, öll með parketi og 3 með skápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með bæði baðkari og sturtu, gluggi á baðherbergi. Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og þaðan er innangengt í bílskúrinn. Hann er með máluðu gólfi, heitu og köldu vatni, rafmagni og góðum gluggum. Búið að stúka af geymslu í enda bílskúrs.

Einiberg 27 er virkilega vel staðsett hús innst í botnlanga með skjólgóðum garði og notalegum palli. Garðurinn er með fjölbreyttum gróðri og notalegt að geta farið og tínt hindberg í skyrið á haustin eða sótt rabbabara og kryddjurtir. Setbergið er oft eins og að búa í rólegu þorpi út á landi. Jólaþorpið í Hafnarfirði og hátíðin Hjarta Hafnarfjarðar eru engu lík og notalegt labb þangað. 

Það er stutt í tvo skóla héðan, Setbergsskóla og Lækjarskóla. Það eru tveir leikskólar í hverfinu, Hlíðarberg og Hlíðarendi. Það er líka stutt í Kaplakrika (FH) í aðrar íþróttir (undirgöng). Einnig er stutt í aðra þjónustu eins og tannlækna, búð, apótek, Pizza Hut, snyrtistofu, hárgreiðslustofu og svo eru Ikea, Costco, Bónus og golfvöllur í bakgarðinum.

 Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat

Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram

Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja

Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Kort af Einiberg 27

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð