Brekkuhvammur 16
01-0101 · 220 Hafnarfirði



8 dagar á sölu
129.900.000 kr
642.116 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt, bjart og afar vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Brekkuhvamm í Hafnarfirði. Eignin er 202,3 fm, þar af 30,8 fm bílskúr, og stendur á 678 fm gróinni lóð á rólegum og fjölskylduvænum stað. Eignin er laus til afhendingar.
Húsið er einstaklega vel skipulagt með rúmgóðum sameiginlegum rýmum og góðri tengingu út í fallegan garð. Í garði er ca.12 fm geymsluskúr, einangraður og með hita og rafmagni, sem nýtist vel sem geymsla eða vinnuaðstaða (skúrinn er ekki innifalinn í skráðum fermetrum eignarinnar).
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu sem tengist áfram holi sem er parketlagt. Þar er gesta salerni.
Frá svefngangi er aðgengi að geymslu með fataskápum og rúmgóðu flísalögðu þvottaherbergi. Þar er góð innrétting, vinnuborð og útgengi út í garð.
Eldhúsið er bjart og rúmgott, með flísalögðu gólfi, snyrtilegri innréttingu og góðu plássi fyrir borðaðstöðu – notalegt rými sem nýtist vel fjölskyldu í dagsins önn.
Samliggjandi stofur eru mjög rúmgóðar og bjartar, parketlagðar og með góðu flæði. Útgengi er úr stofum út í garð sem gerir tengingu inni og úti einstaklega góða.
Svefnherbergjahluti er vel afmarkaður.
Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergin voru upphaflega þrjú, en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi – auðvelt er að breyta aftur í tvö hefðbundin barnaherbergi. Öll herbergi eru parketlögð.
Baðherbergi er snyrtilegt og vel búið, með glugga, flísum á gólfi og veggjum, vegghengdu salerni, handklæðaofni og flísalagðri sturtu með gleri.
Bílskúr: 30,8 fm bílskúr, snyrtilegur og bjartur með gluggum og göngudyrum út á veröndina í garðinum. Hitaveita og rafmagn er í bílskúrnum, og hentar hann vel sem vinnustofa.
Lóð & umhverfi
Lóðin er skráð hjá fasteignaskrá HMS 678 fm. Hún er gróin, falleg og afgirt að stórum hluta – kjörin fyrir fjölskyldulíf, leik og útiveru.
Úr stofunni er útgengt á stóra og skjólgóða verönd sem hentar vel fyrir grill og að borða úti.
Eignin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað við Brekkuhvamm í Hafnarfirði, þar sem stutt er í miðbæinn, leikskóla, skóla, verslanir, sundlaugar og íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030, ulfar@fastborg.is
Ingimar Ingimarsson í síma 861-8458, ingimar@fastborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



































