HÚSASJÁ

Breiðvangur 6

01-0402 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

124 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

4870 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



14 dagar á sölu

sell

72.900.000 kr

584.603 kr/m²

Hraunhamar kynnir fjögurra til fimm herbergja endaíbúð á efstu hæð snyrtilegu fjölbýlishúsi vel staðsett í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Íbúðin er 124,7 fermetrar með geymslu.

Skipting eignarinnar: Sameiginlegur inngangur, forstofa, hol, stofa, 4 svefnherbergi (3 svefnherbergi á teikningu), baðherbergi, eldhús með borðkróki, þvottahús, geymsla og svalir.

Lýsing eignarinnar:

Forstofa með fataskápum.

Gott hol.

Þrjú barnaherbergi, eitt þeirra er innaf stofunni sem var breytt frá upphaflegri teikningu, auðvelt að breyta stofunni til fyrra horfs.

Hjónaherbergi með fataskápum.

Eldhús með snyrtilegri innrétting, fínn borðkrókur þar, innaf eldhúsinu er þvottahús með glugga.

Björt og fín stofa og þaðan er utangengt út á svalir.

Baðherbergi með sturtuklefa og innréttingu, flísalagt í kringum sturtuna.

Í kjallara er sérgeymsla, auk reglubundinnar sameignar, þ.e. sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.

Gólfefni eru harðparket og flísar.

Þetta er rúmgóð og björt íbúð, vel staðsett í Norðurbænum, stutt í skóla-og leiksskóla og aðra þjónustu.

Yfirstandandi framkvæmdir eru í húsinu þar sem verið er að skipta um alla glugga í húsinu og einnig er að verðið að múrviðgerða og mála húsið. Þessar framkvæmdir borgar seljandi.

Íbúðin er í útleigu og er til afhendingar 1.sept. næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita og bókið einkaskoðun hjá:

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Kort af Breiðvangur 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu