Arnarhraun 15
01-0201 · 220 Hafnarfirði



11 dagar á sölu
119.900.000 kr
714.967 kr/m²
Glæsileg efri sérhæð með útleigueiningu á jarðhæð - bílskúrsréttur:
Kristján Þórir Hauksson Og Lind fasteignasala kynna: Bjarta fjögurra herbergja efri sérhæð í góðu tvíbýli sem hefur verið talsvert endurnýjuð síðustu ár. Eigninni fylgir 2ja herbergja aukaíbúð sem einnig er mikið endurnýjuð og er að hluta til niðurgrafin. Um að ræða 111,3 fermetra efri sérhæð sem skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús. Úr stofunni er gengið út á svalir sem snúa til suðurs. Aukaíbúðin er 56,4 fermetra sem skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og svefnherbergi.
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með fataskáp og 60/60 flísum á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og fallegt, granítborðplata, hvít háglans innrétting, spanhellur með háf sem blæs út og ofn í vinnuhæð. Mikið og gott skápapláss. Tangi með pláss fyrir tvo. Parket á gólfi. Eldhús er í alrými opið við stofu og borðstofu.
Alrými/Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum á tvo vegu. Innfelld halogen lýsing og útgengi á suðursvalir. Veggskápar undir sjónvarpi og glerskápar. Parket á gólfi.
Rúmgott miðrými tengir saman íbúðina með óslitnu ljósu parketi og innfelldri halogen lýsingu.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Smekklegt með ljósum flísum á gólfi og í kringum sturtu. Stór sturta með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og hvít háglans innrétting með granítborðplötu. Stór speglaskápur fyrir ofan vask.
Þvottahús: Rúmgott með hvítum innréttingum og skápum sem hækkar vinnuhæð þvottavéla/þurrkara. Þrifagrind í skáp og óhreinataus skúffur. Flísar á gólfi.
Svalir: Snyrtilegar svalir sem snúa til suðurs. Aðgengi út frá stofu.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð með sólpalli og bakgarði sem er sameiginlegur með húsinu.
Sameign/Geymsla: Ca. 6 fm geymsla á jarðhæð sem er sameiginleg með miðhæð.
Nánari lýsing - aukaíbúð jarðhæð - útleigueining - Sérinngangur bakvið hús.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting og dökkar borðplötur. Parket á gólfi.
Stofa: Samliggjandi með eldhúsi í opnu rými. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu, upphengdu salerni, rakastýrðri viftu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi: Stórt og rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Ekki er full lofthæð í íbúðinni.
Geymsluskúr á lóð fylgir þessari íbúð
Stutt í alla helstu þjónustu, verslun, skóla og leiksskóla.
Endurbætur á íbúðinni:
Eftirfarandi endurbætur á húsinu hafa verið gerðar síðustu ár - raflagnir, ofnar, ofnalagnir, gólfefni og lýsing ásamt því að hún var máluð að innan 2019.
Viðhald á ytra byrði hússins og lóð:
2023 Ytra byrði sprunguviðgertog málað.
2023 lóð snyrt og timburverk málað.
2020. Útitröppur og aðkoma endursteypt.
2012. Að sögn seljanda var þak endurnýjað.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna









































