Álfaskeið 74
01-0401 · 220 Hafnarfirði



10 dagar á sölu
81.900.000 kr
540.237 kr/m²
RE/MAX og Guðrún Þórhalla löggiltur fasteignasali kynna: Bjarta og fallega 4–5 herbergja endaíbúð á efstu hæð með frábæru útsýni. Bílskúr fylgir eigninni. Íbúðin er við Álfaskeið 74, fallegt og mikið endunýjað fjölbýlishús.
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða endaíbúð í góðu fjölbýlishúsi. Í dag eru þrjú svefnherbergi, en auðvelt er að bæta við fjórða herberginu. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með útgengi út á góðar suðvestursvalir.
Fasteignamat 2026 er kr. 85.550.000.
Íbúðin er með tvennum svölum, gluggum í þrjár áttir og er afar vel staðsett með fallegu útsýni.
Sameign hússins hefur verið töluvert endurnýjuð að utan á síðustu árum.
Hér geti þið kíkt í 3D heimsókn með því að smella á þennan hlekk!
Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.is og Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali í síma 695-3205.
Stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands, eignin er skráð samtals 151,6 fm þar af er geymsla 4,2 fm og bílskúr 24,7 fm.
Húsið skiptist í tvo stigaganga, nr. 74–76, með tíu íbúðum í hvorum hluta.
Nánari lýsing
Forstofa / anddyri Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa Mjög rúmgóð og björt rými með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar suðvestursvalir.
Aukaherbergi við stofurými(sjónvarpsrými í dag) Rýmið tengist stofu og auðvelt er að loka því af og útbúa fjórða svefnherbergið.
Eldhús Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu, ofni og gaseldavél. Flísar á gólfi, gott skápapláss og vinnurými.
Hjónaherbergi Rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II Með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III Rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergisgangur Með vinnuaðstöðu og rúmgóðum fataskápum. Útgengi er út á svalir af gangi.
Baðherbergi Með góðri sturtuaðstöðu, innréttingu og glugga. Flísalagt gólf og veggir að hluta. Gert er ráð fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Þvotta og þurrk aðstaða er í sameign í kjallara.
Bílskúr, geymsla og sameign
Bílskúr með inngönguhurð auk hefðbundinnar bílskúrshurðar.
Sérgeymsla í kjallara.
Vagna- og hjólageymsla í sameign með útgengi á bílaplan.
Viðhald og endurbætur
Gluggar og gler- svalir: Nýjir gluggar og gler í hluta íbúðar. Gluggar í sameign endurnýjaðir að hluta. Svalahurðir íbúðar endurnýjaðar 2025. Svalagólf málað.
Húsið: Múrviðgert og málað 2024 og 2025.
Frárennslislagnir: Árið 2020 voru allar lagnir myndaðar og fóðraðar að innan, alveg út í götu.
Þak: Yfirfarið og málað.
Rafmagn: Rafmagnstafla í sameign er nýleg.
Staðsetning:
Álfaskeið 74 er fjölskylduvæn gata í nálægð við miðbæ Hafnarfjarðar. Grunn- og leikskólar eru í göngufæri ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu. Stutt er á íþróttasvæðið við Kaplakriki. Þá er fimleikahús Fimleikafélag Bjarkar einnig í þægilegu göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í sím 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































