HÚSASJÁ

Sjávargrund 9B

01-0209 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

191 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1992

Byggingarár

8141 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla



36 dagar á sölu

sell

134.900.000 kr

704.807 kr/m²

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Sjávargrund 9B, 210 Garðabær. Glæsileg 7 herbergja 191,4 m2 íbúð með sérinngangi og stæði í bílageymslu. Stutt í skóla, íþróttastarf og alla helstu þjónustu.

Nánar: Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð og komið inn í anddyri með flísum á gólfi. Á aðalhæð íbúðarinnar (2. hæð) eru eldhús, borðstofa og stofa með aukinni lofthæð, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Eldhús með flísum á gólfi og innréttingu með steinplötu á borðum, gott borðpláss og eyja. Skápar neðan borðplötu, vaskur felldur í borðplötu, helluborð í borðplötu og háfur fyrir ofan. Gólfsíðir skápar til hliðar, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Borðstofa með flísum á gólfi og samstæðri innréttingu við eldhús. Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir. Baðherbergi sem er nýuppgert og flísalagt hólf í gólf, hiti í gólfi. Upphengt salerni með innbyggðum kassa og handklæðaofn. Innrétting undir handlaug ofan á borðplötu og stór baklýstur spegill fyrir ofan, gólfsíðir skápar til hliðar. "Walk in" sturta með vönduðum innbyggðum tækjum, stórum sturtuhaus og glerskilrúmi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp með lýsingu fyrir ofan, frá herberginu er útgengi út á svalir sem snúa að sameiginlegum bakgarði hússins. Barnaherbergi með parketi á gólfi með útgengi út á svalir. Á rishæð eru tvö svefnherbergi með parket á gólfi og baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél. Í kjallara er fjölskylduherbergi með parketi á gólfi, inn af herberginu er stór geymsla þaðan sem gengið er inn í bílageymslu.

Annað: Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu, rafhleðslustöð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign hússins, einnig dekkjageymsla. Sameiginleg bílastæði á lóð hússins.

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

Sjá einnig:

fastborg.is/

Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook

Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Sjávargrund 9B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu