HÚSASJÁ

Naustahlein 26

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

89 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1989

Byggingarár

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



22 dagar á sölu

sell

79.500.000 kr

891.256 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjart og vel skipulagt 3ja herbergja raðhús á einni hæð, samtals 89,2 fm, að Naustahlein 26, 210 Garðabær. Eignin er í aldursbundnu húsnæði fyrir 60 ára og eldri.

Raðhúsið er með gott alrými þar sem stofa/borðstofa og eldhús liggja vel saman. Stofan er með gólfsíðum gluggum sem gefa rýminu mikla birtu. Eldhús er með nýlegri innréttingu, góðu skápaplássi, nýlegum tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Baðherbergi er nýlegt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni o.fl. Útirýmið er vel nýtt með fallegum garði, stórum palli/verönd og garðhúsi/áhaldageymslu með vinnuaðstöðu á steyptri plötu (áætlað u.þ.b. 9,9 fm, óskráðir fermetrar). Fyrir framan er hellulagt setusvæði með kvöldsól og sérsmíðaðri grillaðstöðu. Sér innkeyrsla er við eignina með rafbílahleðslu.

Við eignina eru malbikaðir göngustígar og örstutt göngufæri í þjónustukjarna DAS. Möguleiki er á að nýta sér þjónustu hjá DAS, m.a. hárgreiðslustofu, mat, snyrtistofu, sundlaug, tækjasal og sjúkraþjálfara o.fl.

Nánar tiltekið eign að Naustahlein 26, fastanúmer 207-1988 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi og sameignarréttindi eftir því sem við á.

Ásett verð: 79.500.000 kr.

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Sölupunktar eignar:Stór pallur/verönd, garður og garðhús (u.þ.b. 9,9 fm)Gólfsíðir gluggar – björt stofa/borðstofaNýlegt eldhús, innbyggð uppþvottavél, gott skápaplássNýlegt bað, upphengt salerni og handklæðaofn60+ • DAS í göngufæri • innkeyrsla með rafhleðslu

Eignin skiptist í:

Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér innkeyrslu og útirými (pall/verönd, garð að aftan og hellulagt setusvæði að framan). Á lóð er einnig garðhús/áhaldageymsla með vinnuaðstöðu (u.þ.b. 9,9 fm – óskráðir fermetrar).

Nánari lýsing:

Forstofa: Snyrtileg forstofa, flísar á gólfi, gott pláss fyrir yfirhafnir.

Stofa/ borðstofa: Björt stofa/borðstofa í alrými, gólfsíðir gluggar sem gefa mikla birtu.

Eldhús: Nýleg innrétting, gott skápapláss og vinnufletir, innbyggð uppþvottavél, nýleg tæki, korkdúkur á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Svefnherbergi: Með fataskáp, parket á gólfi og útgengi út á verönd/bakgarð um svalarhurð (sett upp 2023).

Baðherbergi: Nýlegt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.

Þvottahús/ geymsla: Ágætis þvottahús og geymsla með hillum.

Útirými – bakgarður: Fallegur og vel hirtur garður með stórum palli/verönd. Garðhús/áhaldageymsla með vinnuaðstöðu á steyptri plötu (u.þ.b. 9,9 fm – óskráðir fermetrar).

Útirými – framhlið: Hellulagt setusvæði, kvöldsól og sérsmíðuð grillaðstaða.

Innkeyrsla: Sér innkeyrsla með rafbílahleðslu.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661-7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is

Við hjá STOFN FASTEIGNASÖLU setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.

Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

STOFN FASTEIGNASALA – setjum þig í fyrsta sætið.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Naustahlein 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð