HÚSASJÁ

Lindarflöt 40

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

165 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1965

Byggingarár

850 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



3 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

846.340 kr/m²

Fasteignasalan TORG Kynnir: Einbýlishús á einni hæð við Lindarflöt 40 Garðabæ. Húsið er skráð alls 165,3 fm að stærð með skjólríkum suður garði. Húsið sjálft er 132,0 fm að stærð og bílskúr er 33,3 fm að stærð. Húsið er að mestu upprunalegt og komið er að endurnýjun. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, fasteignasali í GSM: 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Sækja söluyfirlit HÉR

Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í  forstofu með fatahengi. Inn af forstofu er gangur með stórum forstofuskápum. Til hægri er aðalrými hússins, parket á aðalrými, eldhúsi og borðstofu.  Stofa með útgengi út á timbur verönd sem snýr til suð-vesturs. Til vinstri er svo eldhús, svefnherbergisgangur og gesta salerni. Inn af svefnerbergisgangi er þvottaherbergi og aðalbaðherbergi og útgengi út í sólstofu. Úr sólstofu er farið inn í garðskála/gróðurhús. Einnig er hægt að fara úr sólstofu inn í svefnherbergi í bakhluta bílskúrsins.

Eldhús: Upprunaleg innrétting og eldhústæki. Opið inn í borstofu sem er svo samliggjandi stofu.

Stofa: stofan er rúmgóð og rúmar einnig sjónvarsstofu. Parket er á gólfi og miklir gólfsíðir gluggar. Útgengt er út í garð.

Gestasalerni: Upprunlegur vaskur og klósett, veggir flísalagðir að hluta og dúkur á gólfi.

Aðalbaðherbergi: flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi og baðkar. Ljós innrétting með ágætis skápáplássi.

Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 3 auk lítils tölvuherbergis. Parket er á svefnherbergisgangi og herbergjum en dúkur á gólfi í svefnherbergi sem er hluti af bílskúr. Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi. Minna svefnherbergi í enda gangsins með útgengi út í sólstofu. Einnig er mjög gott svefnherbergi í bakhluta bílskúrsins með dúk á gólfi og  fataskáp.

Þvottaherbergi: flísalagt með innréttingu, vaski og lokuðum skápum og tengi fyrir þvottavél sem og aðstaða fyrir þurrkara.

Heimkeyrslan er malbikuð, stétt er steypt.

Garður er í góðri rækt.

Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Kort af Lindarflöt 40

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð