HÚSASJÁ

Kirkjulundur 6

01-0201 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

80 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

7727 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Geymsla



306 dagar á sölu

sell

69.600.000 kr

809.302 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:  Einstaklega bjarta og vel skipulagða 86 fm. tveggja herbergja íbúð að Kirkjulundi 6, 210 Garðabæ, þar af er 5,9 fm. sérgeymsla í kjallara sem eru óskráðir ferm. skv. þjóðskrá. Eignin er samtals birt stærð séreignar 81fm. skv. Þjóðskrá.. Eignin er skráð á 2. hæð (gengið inn af jarðhæð). Íbúðin er í litlu og rólegu fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri. Stutt í alla helstu þjónustu á Garðatorgi; í göngufæri eru verslanir, heilsugæsla, bókasafn og góðar samgöngur.

Nánar tiltekið eign merkt: Kirkjulundur 6, fastanúmer 207-0975, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Eignin er samtals birt stærð séreignar 81 fm. skv. Þjóðskrá. Eigninni tilheyrir sérgeymsla í kjallara (utan fermetratölu), sérbílastæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu og svalir með fallegu útsýni. Lyfta er úr bílakjallara.

ATH. Eignin er laus við kaupsamning.

Ásett verð: 69.600.000 kr.

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*Sérgeymsla í kjallara (utan fermetratölu skv. ÞÍ/eignaskiptayfirl.)Sérbílastæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu – lyfta úr bílakjallara.Svalir með útsýni.Stórir gluggar/ útbyggt gluggasvæði við borðstofurými.Veislusalur í sameign í eigu íbúa hússins.Góð staðsetning – stutt í þjónustu á Garðatorgi.

Eignin skiptist í:

Forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi (með tengi fyrir þvottavél), svalir, sérgeymslu í kjallara og sérbílastæði í bílakjallara.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Flísalögð forstofa með fataskápum.

Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa; útgengt á svalir og útsýni. Við borðstofu er útbyggt gluggasvæði/stórir gluggar sem gefa mikla birtu. Parket á gólfi.

Eldhús: Gallerý-eldhús með ljósum innréttingum og hvítum flísum milli skápa; rafmagnseldavél og borðpláss. Parket á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum.

Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél; stuðningsgrind við sturtu.

Geymsla: 5,9 fm. sérgeymsla í kjallara – ath. utan fermetratölu skv. Þjóðskrá/eignaskiptayfirlýsingu.

Bílastæði: Sérmerkt stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Lyfta úr bílakjallara.

Sameign: Veislusalur í eigu íbúa hússins með eldhúsi og snyrtingum innaf.

Nánari upplýsingar

Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali – STOFN Fasteignasala

Sími 661 7788 • Tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is

STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu. Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Kirkjulundur 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu