Hörgslundur 17
01-0101 · 210 Garðabæ



20 dagar á sölu
171.900.000 kr
958.194 kr/m²
Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali, jason@betristofan.is, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Hörgslundur 17, 210 Garðabæ. Glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús á einni hæð með tvöföldum bílskúr og góðum garði til suðurs. Húsið er mjög vel staðsett innst í rólegri botnlangagötu á fjölskylduvænum stað í Garðabænum. Eignin er samtals um 180 fm og skiptist í rúmgóða og bjarta stofu með góðri lofthæð, flísalagt með gólfhita og útgengi út í góðan garð til suðurs með heitum potti. 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, opið eldhús, þvottahús, geymslur og tvöfaldan bílskúr.
Frábær staðsetning á rólegum og fjölskylduvænum stað. Einnig er stutt í fjölbreytta þjónustu í Garðabænum s.s. allar verslanir, veitingastaði, lágvöruverslun og aðra þjónustu á í Garðatorgi. Skólar á öllu skólastigum eru í göngufæri.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Nýjar flísar á gólfi, fataskápur, gestasnyrting endurnýjuð inn af forstofu.
Baðherbergi I: Flísalagt í hólf og gólf, VOLA blöndunartæki, vaskur, upphengt salerni og speglaskápur.
Stofa: Stór og björt með stórum gluggum og hátt til lofts, flísar á gólfi. Útgengi út á suðurpall. Gólfhiti
Eldhús: Nýleg innrétting frá HTH með steini frá S.Helgasyni, kvartz. Vönduð tæki, tveir ofnum, annar með innbyggðri örbylgju, helluborð með fimm hellum. Gólfhiti.
Þvottahús: Staðsett inn af eldhúsi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergjagangur: Flísar á gólfi, gólfhiti, gengið inn í 3 svefnherbergi og baðherbergi. Fataskápur á gangi.
Herbergi I: Parket á gólfi.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Baðherbergi II: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, VOLA blöndunartæki, vaskur og borðplata úr kvartz, innrétting með neðri skápum og efri speglaskáp með innfelldri lýsingu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, gott skápapláss, útgengt út í garð. Nýtt hurðastykki er til og fylgir með.
Bílskúr: Tvöfaldur, 43,4 fm, með rafmagni, heitu og köldu vatni. Stúkuð geymsla inn í bílskúr. Möguleiki á að breyta hluta bílskúr í íbúð. Teikningar með tillögu arkitekts fylgja.
Raðhús á einni hæð með tvöföldum bílskúr innst í botnlanga á fjölskylduvænum og rólegum stað í Garðabænum.
Allar upplýsingar veitir:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fastiengasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






































