HÚSASJÁ

Háhæð 7

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

165 m²

Stærð

6

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1992

Byggingarár

310 m²

Lóð

Sérinngangur

Þvottahús



278 dagar á sölu

sell

149.500.000 kr

907.711 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega gott og vel skipulagt 164,7 fermetra 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað við óbyggt svæði við Háhæð í Garðabæ.

Aukin lofthæð er í hluta hússins og útsýni er frá stofum, skála og af verönd út að Bessastöðum og út á sjó.  Eignin er virkilega vel staðsett miðsvæðis og stutt frá stofnbrautum.

Mögulegt er að útbúa 4. svefnherbergið í sjónvarpsstofu á efri hæð.

Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð.

Hol, flísalagt og með innbyggðum fataskápum.

Barnaherbergi I, teppalagt og rúmgott.

Eldhús, flísalagt og bjart með góðum glugga, aukinni lofthæð og góðri borðaðstöðu. Falleg hvít + beykiinnrétting með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.

Þvottaherbergi / búr, inn af eldhúsi, er flísalagt og með góðri innréttingu og vaski.

Samliggjandi stofur, flísalagðar og bjartar með aukinni lofthæð og fallegu útsýni.

Sólstofa, sem gengið er í um tvö þrep úr stofum er flísalögð og með gólfhita. Úr sólstofu er útgengi á mjög skjólsæla afgirta hellulagða verönd með einstaklega fallegu útsýni og af verönd er gengið út á tyrfða lóð með trjágróðri.

Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, baðkar og flísalögð sturta.

Hjónaherbergi, rúmgott, teppalagt og með fataskápum.

Gengið er upp á efri hæð hússins um góðan hringstiga úr holi neðri hæðar.

Sjónvarpsstofa, korklögð og mjög rúmgóð með fjórum opnanlegum þakgluggum. Væri mögulegt að útbúa barnaherbergi í sjónvarpsstofu.

Barnaherbergi II, dúklagt og rúmgott með tveimur opnanlegum þakgluggum, fataskápum og föstum hillum.

Bílskúr, er með rafmótor á hurð, hita og rennandi heitu og köldu vatni. Góð lofthæð er í bílskúr og er lítið milliloft innst í skúrnum.

Húsið að utan lítur vel út sem og gluggar og þakjárn.

Lóðin er fullfrágengin. Á framlóð er hellulögð innkeyrsla fyrir tvo bíla og hellulögð stétt með hitalögnum undir. Á baklóð er hellulögð skjólsæl verönd, tyrfð flöt og trjágróður. Baklóðin snýr að nýuppgerðum rólóvelli.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og grónum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt frá stofnbrautum. Stutt er í Hofstaðaskóla, F.G., verslun Krónunnar o.fl.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Kort af Háhæð 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð