HÚSASJÁ

Háholt 7

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
46 myndir

310 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1983

Byggingarár

903 m²

Lóð

Sérinngangur

Þvottahús



44 dagar á sölu

sell

219.000.000 kr

706.452 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Einstakt einbýlishús, teiknað af Jes Einari Þorsteinssyni, með glæsilegu útsýni við Háholt 7 í Garðabæ. Húsið er skráð 310 fm og er á þremur hæðum. Húsið skiptist í fimm svefnherbergi, tvær stofur, tvö eldhús, tvö baðherbergi, gestasalerni, þvottaherbergi, anddyri og bílskúr. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is

Nánari lýsing: Gengið er inn í húsið á miðhæð og inn í anddyri með innbyggðum fataskápum fyrir innan. Frá anddyri er innangengt inn í þvottahús og bílskúr með háalofti. Komið er síðan inn í bjart og opið alrými með fallegu útsýni. Í alrýminu er arinstofa, setustofa og borðstofa. Eldhúsinnréttingin er úr ljósum við og flæðir eldhúsið að hluta til inn í eldhúskrók og stofuna. Útgengt er út á rúmgóðar svalir með frábæru útsýni yfir Garðabæ, út á sjó og alla leið á Snæfellsnesið. Lítið gestasalernir er á miðhæð hússins ásam búri við eldhúsið. Á efstu hæð er baðherbergi með sturtu, salerni og ljósri innréttingu með handlaug. Á efstu hæðinni eru einnig þrjú svefnherbergi. Á neðstu hæð hússins er innangengt inn í sér íbúð með baðherbergi, þvottahúsi, tvö svefnherbergi, eldhúsi og stofu. Baðherbergið er mjög rúmgott með sérsmíðuðu baðkari/sturtu, salerni og ljósri innréttingu með handlaug. Sér inngangur er inn í þessa íbúð þannig auðvelt er að hafa hana sem sér útleigueiningu eða part af húsinu. Mikið er um fallega sjónsteypu í húsinu og er húsið sérlega skemmtilega hannað með óhefðbundinni lögun.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is.

Kort af Háholt 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu