Goðatún 1
01-0001 · 210 Garðabæ



51 dagar á sölu
69.900.000 kr
718.397 kr/m²
Trausti fasteignasala kynnir 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi við Goðatún 1 í Garðabæ. Bílskúr fylgir eigninni með sérbílastæði fyrir framan. Mjög rúmgóð lóð sem býður upp á mikla möguleika. Góð staðsetning og stutt í verslun og þjónustu.
Eignin er skráð hjá Þjóðskrá, íbúð 73,7 fm og bílskúr 23.6, samtals 97,3 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is
Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.is
Nánari lýsing:
Inngangur er að aftanverðu. Komið er inn á gang þaðan sem gengið er inn í þvottahús. Gangur og þvottahús er sameign með efri hæð
Komið inn í forstofu, flísar á gólfi.
Baðherbergi með gluggum, salerni, litlum vaski og flísalagðri sturtu.
Stofa er ágætlega björt og rúmgóð, parket á gólfi.
Eldhús með innréttingu, efri og neðri skápar, simens eldavél og uppþvottavél, flísar á gólfi.
Inn af stofu er gengið inn á gang en þar eru tvö svefnherbergi.
Svefnherbergi I, með fataskáp, korkflísar á gólfi.
Svefnherberig II, með fataskáp, spónarparket á gólfi.
Bílskúr er 23,6 fm, heitt og kalt vatn, innrétting og pissuskál. Gönguhurð inn í bílskúr. Skipt var um járn á þaki á bílskúr fyrir 2 árum.
Lóðin er stór og gróin og býður upp á mikla möguleika.
Nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is
Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















