HÚSASJÁ

Efstilundur 8

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

196 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1972

Byggingarár

845 m²

Lóð

Garður

Svalir

Þvottahús

Heitur pottur



14 dagar á sölu

sell

175.000.000 kr

895.141 kr/m²

Nýtt á skrá! Efstilundur 8 Garðabæ - Glæsileg fjölskyldueign á frábærum stað í Lundunum í Garðabæ.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og vel skipulagt 195,5 fermetra einbýlishús með þremur til fjórum svefnherbergjum við Efstalund 8 í Garðabæ. Stór 845,0 fermetra lóð með stórri viðarverönd með heitum potti, útisturtu og góðum geymsluskúr (u.þ.b. 11 fermetrar). Rúmgóður tæplega 15 fermetra sólskáli sem er ekki inn í fermetratölu hússins og stór 57,6 fermetra bílskúr.

Eignin skiptist í: Forstofu, gestasnyrtingu, stofu (setustofu, borðstofu og sjónvarpsstofu), sólstofu, eldhús, svefnherbergisgang, hjónaherbergi, 2-3 barnaherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Stór bílskúr og upphitaður geymsluskúr með rafmagni.

Staðsetning eignarinnar er afar góð í endanum á lokuðum botnlanga á eftirsóknaverðum stað við Efstalund í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum.

Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Salerni, vaskur og gluggi til suðurs.

Stofa: Er rúmgóð og rúmar vel setustofu, borðstofu og sjónvarpsstofu. Harðparket á gólfi og gluggar til vesturs og austurs. Gengið er í sólstofu frá stofu.

Sólstofa: Er tæplega 15 fermetrar að stærð með flísum á gólfi og gólfhita. Útgengt á stóra verönd til suðurs/vesturs úr sólstofu.

Eldhús: Með viðar eldhúsinnréttingu, kork á gólfi og gluggum til vesturs. Stál AEG bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél og keramik helluborð. Flísar á mili skápa og góður borðkrókur.

Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. 10 árum síðan á smekklegan máta. Flísar á gólfi og veggjum, flísalögð sturta og baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til norðurs.

Svefngangur: Með harðparketi á gólfi. Gengið er inn í hjónaherbergi, 2 barnaherbergi og baðherbergi frá svefngangi.

Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.

Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.

Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs.

Svefnherbergi IV/vinnuherbergi: Er staðsett inn af forstofu. Opið inn í bílskúr þaðan en auðvelt að loka á milli og nýta sem svefnherbergi.

Bílskúr: Er stór, eða 57,6 fermetrar að stærð með gluggum til norðurs og suðurs. Rafhleðslustöð er uppsett við bílskúr.

Útiskúr: Rúmgóður geymsluskúr, um 11 fermetrar, sem er upphitaður og með rafmagni, er staðsettur á baklóð hússins

Fallegur og barnvænn garður með góðri tyrfðri flöt og stórri viðarverönd til suðurs og vesturs sem er afgirt að hluta og með fallegri kvöldlýsingu. Einnig er rúmgóð verönd sem afmarkast með hellum til suðasturs framan við hús með kvöldlýsingu. Hellulögð stétt með snjóbræðslu fyrir framan bílskúr og að inngangi hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

Kort af Efstilundur 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44